Chicago lagði meistarana í Miami Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. maí 2013 07:48 Nate Robinson og félagar höfðu ástæðu til að brosa í Miami. Nordicphotos/Getty
Nate Robinson skoraði 27 stig og fór fyrir liði Chicago sem vann óvæntan 93-86 sigur á Miami Heat í undanúrslitum Austurdeildar NBA í nótt. Leikurinn var sá fyrsti í rimmu liðanna. Chicago tryggði sér sæti í undanúrslitum með sigri á Brooklyn Nets í sjöunda leik liðanna á laugardag en enga þreytu var að merkja á rauðklæddum gestunum. Heimamenn í Miami leiddu 76-69 þegar sex og hálf mínúta lifði leiks. Þá settu Robinson og félagar í fluggírinn, skoruðu 24 stig gegn 10, og stjörnurnar LeBron James og Dwyane Wade vissu ekki hvað á sig stóð veðrið. Joakim Noah skoraði 13 stig og hirti 11 fráköst fyrir Chicago. Dugnaður gestanna í fráköstum lagði grunninn að sigrinum en liðið tók 46 fráköst gegn 32 fráköstum heimamanna. LeBron James skoraði 24 stig þar af 15 í síðasta fjórðungi. Wade skoraði 14 stig. Annar leikur liðanna fer fram í Miami annað kvöld.LeBron James tók við verðlaunum sem besti leikmaður deildarinnar fyrir leik.Nordicphotos/Getty
NBA Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira