Atlético vann Real í bikarúrslitaleiknum - Ronaldo fékk rautt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2013 22:12 Mynd/Nordic Photos/Getty
Atlético Madrid er spænskur bikarmeistari í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Real Madrid í framlengdum bikarúrslitaleik á Santiago Bernabéu í kvöld. Brasilíumaðurinn Miranda skoraði sigurmarkið á 98. mínútu. Real Madrid endaði leikinn með tíu menn eftir að Cristiano Ronaldo fékk rauða spjaldið á 117. mínútu. Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, fékk líka rautt. Þetta er tíundi bikarmeistaratitill Atlético Madrid sem hafði unnið bikarinn síðast árið 1996 eftir sigur á Barcelona í framlengingu. Atlético Madrid var búið að tapa þremur bikarúrslitaleikjum í röð: 1999, 2000 og 2010. Þetta er annað árið í röð sem Atlético Madrid vinnur titil undir stjórn Argentínumannsins Diego Simeone (tók við í nóvember 2011) því liðið vann Evrópudeildina í fyrra. Real Madrid fékk draumabyrjun þegar Cristiano Ronaldo kom liðinu í 1-0 á 14. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Mesut Özil. Diego Costa jafnaði á 35. mínútu eftir að hafa fengið stungusendingu inn fyrir vörn Real Madrid frá Radamel Falcao. Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var sendur upp í stúku á 76. mínútu fyrir að mótmæla ákvörðun dómarans. Þannig var staðan í lok leiksins og því þurfti að framlengja leikinn. Atlético Madrid var miklu betra liðið í framlengingunni. Miranda tryggði Atlético Madrid bikarinn með skalla á 98. mínútu eftir fyrirgjöf frá Koke. Cristiano Ronaldo fékk rauða spjaldið fyrir að sparka í Gabi á 117. mínútu en þá varð allt vitlaust fyrir framan varamannabekknum sem og í stúkunni því einhverju var kastað í Thibaut Courtois, markvörð Atlético Madrid. Gabi fékk skömmu seinna sitt annað gula spjald og þar með rautt. Leikurinn hélt loksins áfram og Atlético-liðið landaði fyrsta bikarmeistaratitilinum í 17 ár. José Mourinho, þjálfara Real Madrid, mistókst því að vinna stóran titil á þriðja tímabilinu í röð en liðið varð bikarmeistari 2011 og spænskur meistari í fyrra.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira