Auðvitað mætti Fjölnir - þetta er hestamynd Ellý Ármanns skrifar 30. ágúst 2013 11:00
Meðfylgjandi myndir voru teknar á forsýningu kvikmyndarinnar Hross í oss í gærkvöldi. Eins og sjá má á myndunum voru gestir kátir. Kvikmyndin er eftir Benedikt Erlingsson sem hefur unnið til flestra leikhúsverðlauna sem hægt er; sem leikari, leikstjóri og leikskáld. Hann hefur áður sent frá sér tvær stuttmyndir en Hross í oss er hans fyrsta mynd í fullri lengd. Myndin fléttar saman sögur af lífsbaráttunni, viðureign mannsins við náttúruna og tilraunum hans til að beisla dýrslega krafta sköpunarverksins til sinnar eigin upphefðar, eða glötunar eins og segir í tilkynningu.Kvikmyndin er grimm sveitarómantík um manninn í hrossinu og hrossið í manninum. Örlagasögur af fólki í sveit eru sagðar frá sjónarhorni hestsins þar sem ást, kynlíf, hross og dauði fléttast saman með skelfilegum afleiðingum. Aðalleikarar myndarinnar eru auk þeirra Jarps, Skjóna og Yrju, þau Ingvar E. Sigurðsson, Steinn Ármann Magnússon, Charlotte Böving og Kristbjörn Kjeld ásamt fleirum. Framleiðandi er Friðrik Þór Friðriksson.Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða albúmið.Hér má sjá myndband sem tekið var í gær: Fjölnir Þorgeirsson og Bryndís Ásmundsdóttir.Hestur mætti á sýninguna.Steinn Ármann Magnússon og Jón Gnarr.Benedikt Erlingsson hélt ræðu fyrir fullum sal af fólki.
Mest lesið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Fleiri fréttir Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira