Cristiano Ronaldo með þrennu í stórsigri Real Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2013 14:30 Mynd/NordicPhotos/Getty
Cristiano Ronaldo skoraði þrjú mörk og lagði upp eitt þegar Real Madrid vann 5-1 stórsigur á Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Real er í þremur stigum á eftir toppliði Barcelona sem á leik inni á morgun. Cristiano Ronaldo er því með þriggja marka forskot á Diego Costa og átta marka forskot á Lionel Messi í baráttunni um markakóngstitilinn á Spáni. Real Madrid var komið í 4-0 eftir 36 mínútna leik en Cristiano Ronaldo skoraði fyrsta markið á 12. mínútu eftir sendingu Karim Benzema. Ronaldo lagði síðan upp mark fyrir Karim Benzema sex mínútum síðar.. Cristiano Ronaldo skoraði þriðja markið úr vítaspyrnu á 26. mínútu eftir að boltinn fór í hendi varnarmanns Real Sociedad. Sami Khedira skoraði fjórða markið á 36. mínútu eftir stoðsendingu Gareth Bale sem hefur þar með lagt upp fimm mörk í síðustu þremur deildarleikjum. Antoine Griezmann minnkaði muninn á 61. mínútu en Cristiano Ronaldo innsiglaði þrennu sína og sigurinn með því að skora fimmta markið á 76. mínútu en það skoraði hann beint úr aukaspyrnu. Cristiano Ronaldo hefur þar með skorað átta mörk í síðustu þremur deildarleikjum Real Madrid sem liðið hefur unnið með markatölunni 15-4. Ronaldo er alls með 16 mörk í 13 leikjum í spænsku deildinni á þessu tímabili.Staðan í spænsku úrvalsdeildinni.
Spænski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira