Hannes: Þetta var svolítið Hollywood-moment Henry Birgir Gunnarsson skrifar 11. febrúar 2013 06:30 Hannes jón fór á kostum með liði sínu eisenach um helgina.fréttablaðið/valli
Hannes Jón Jónsson er kominn á fullt með Eisenach eftir krabbameinsmeðferð. Hann sneri aftur með miklum látum um helgina er hann skoraði þrjú síðustu mörk síns liðs og tryggði því mikilvægan sigur. Hann segir það hafa verið sætt. „Þetta var mjög ljúft. Ég get ekki logið því," sagði Hannes Jón Jónsson en hann tryggði liði sínu, Eisenach, dramatískan sigur, 28-27, í þýsku B-deildinni um helgina. Sigurinn lyfti Eisenach upp í þriðja sæti deildarinnar. Hannes Jón gerði sér lítið fyrir og skoraði þrjú síðustu mörk síns liðs. Sigurmarkið kom 39 sekúndum fyrir leikslok. „Þetta var svolítið Hollywood-moment. Það er ekki spurning að þetta er sætt eftir það sem á undan er gengið. Tilfinningin er rosalega góð og gaman að vera kominn á fullt. Það var góð stemning eftir leikinn." Afrek Hannesar er mikið því í október á síðasta ári fór hans í aðgerð vegna krabbameins. Hann greindist með illkynja æxli í þvagblöðrunni og þurfti að fjarlægja þrjú æxli. Hann er nýstiginn út á handboltavöllinn aftur en hann ætlaði sér alltaf að spila á nýjan leik í þessum mánuði. „Þetta var fyrsti deildarleikurinn minn eftir veikindin. Ég hafði spilað tvo æfingaleiki á undan og einn bikarleik," sagði Hannes en hann segist vera í fínu ástandi þrátt fyrir allt. „Ég fer í lyfjameðferð einu sinni í viku og svo hvíli ég frá æfingum þann dag. Ég fer svo aftur inn á spítala um næstu mánaðamót þar sem ég verð skoðaður á ný. Vonandi verð ég hreinn og fínn þá. Í þeirri heimsókn verður líka tekin ákvörðun um framhald lyfjagjafarinnar. Kannski breyta þeir henni í aðra hverju viku eða einu sinni í mánuði," segir Hannes og bætir við að hann sé ágætlega orkumikill þrátt fyrir lyfjagjöfina. „Ég hugsa rosalega vel um mig og hef gjörbreytt mataræðinu mínu. Ég passa mig líka á því að sofa vel og hvílast vel. Ég hef farið í gegnum þetta án þess að finna mikið fyrir þessu. Ég hef verið mjög heppinn að því leyti að þetta hefur farið vel í mjög. Eflaust hjálpar líka til hvað ég hef passað vel upp á mig." Síðast er Hannes fór í skoðun fannst ekkert. Hann er því bjartsýnn á að næsta skoðun leiði hið sama í ljós. „Svona verður framhaldið hjá mér. Ég fer í skoðun á þriggja mánaða fresti og svo verður að koma í ljós hvernig lyfjagjöfin verður. Það er búið að hringla svolítið með hana," segir Hannes en hann er ánægður með að hafa náð því markmiði sínu að komast aftur út á völlinní febrúar. „Það hefur allt gengið eftir hjá mér sem betur fer. Ég get ekki kvartað yfir neinu og óþarfi að vera með of mikla dramatík í kringum þetta. Vonandi verður þetta gott áfram."
Mest lesið „Ég hélt ég myndi deyja“ Enski boltinn Klúðraði gullgreininni sinni: „Ég er enn í áfalli“ Sport „Enginn vildi að ég myndi vinna“ Sport Senda samúðarkveðjur eftir að nánir vinir Joshua létust í banaslysinu Sport Hetjuleg barátta dugði ekki gegn heimsmeisturunum Handbolti Þungarokkið þaut áfram en á eftir að kaupa afmælisgjöf handa konunni Sport Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Enski boltinn Ekki góð ferð til Rómarborgar í kvöld Fótbolti Fór grátandi upp á sjúkrahús eftir fall stuttu fyrir ÓL Sport Sarri gekkst undir hjartaaðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Hetjuleg barátta dugði ekki gegn heimsmeisturunum Arnór stoðsendingahæstur þegar Karlskrona hoppaði upp í áttunda Elín Klara endaði árið með hundrað prósent skotleik Strákarnir komnir í úrslit á Sparkassen Óðinn bikarmeistari fjórða árið í röð Kolstad tapaði bikarúrslitaleiknum í vítakeppni Segir starfið í húfi hjá Alfreð Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Íslendingarnir í miklum ham fyrir EM Handarbrotinn og missir af úrslitaleiknum Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Sjá meira