Grétu yfir íslenskri stuttmynd Freyr Bjarnason skrifar 31. maí 2013 10:00 Stuttmyndin We Are Weather er sýnd á einkasýningu Maríu í London.
Stuttmynd Maríu Kjartans og tónlistarmannsins Birgis Hilmarssonar, We Are Weather, var frumsýnd í DegreeArt Gallery í London á dögunum. Hún er hluti af einkasýningu Maríu, Spiritual Landscapes. Myndin var tekin upp í brjáluðu veðri á Suðurlandi rétt fyrir síðustu jól. „Hún er búin að fá rosalega góð viðbrögð. Það fóru tveir að gráta. Ég bjóst ekki við því að Ísland væri svona fallegt,“ segir María og hlær. „Ég held að fólk sem býr í London og er umvafið múrsteinum fatti hvað náttúran skiptir það miklu máli og finnur hvað það er nauðsynlegt að tengjast því sem okkur Íslendingum finnst alveg sjálfsagt.“ Myndin verður líklega sýnd á listahátíð Zürich í næsta mánuði og svo verður hún í Edinborgarhúsinu á Ísafirði frá 2. ágúst. Sýningin Spiritual Landscapes samanstendur af þrettán stórum ljósmyndaprentum og þremur stuttmyndum. Hluti verkanna er unninn í blandaðri tækni í samstarfi við listakonuna Hörpu Einarsdóttur, sem myndskreytir hluta ljósmyndanna.
Mest lesið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Tár eftir hverja sýningu Lífið „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Ómetanlegt að hafa sagt frá átröskuninni Lífið Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp Fiskur og kjöt einnig á boðstólnum hjá Sollu Lífið Gjöfull trekantur Menning „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið Fleiri fréttir Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira