Hin óþekkjanlega spegilmynd Álfrún Pálsdóttir skrifar 18. júní 2013 06:00 Nú fer þessari annarri meðgöngu minni senn að ljúka. Hún hefur verið óvenju fljót að líða enda ekki mikill tími til að velta sér of mikið upp úr væntanlegri fjölgun. Maður er reynslunni ríkari og veit hvað er í vændum. Nýtur þess að sofa heila nótt fram á síðasta dag. Skrefin eru hins vegar að þyngjast núna, fataskápurinn að minnka, brjóstsviðatöflurnar hakkaðar og þráðurinn að styttast. Bara sú athöfn að standa upp úr sófanum er þrautin þyngri og fyrir mér hefur verið einstaklega heitt í lofti í sumar. Spegilmyndin verður óþekkjanlegri með hverjum deginum og hælaskórnir komnir aftast í fataskápinn. Þrátt fyrir að þetta sé meðganga númer tvö hjá undirritaðri er þetta í fyrsta sinn sem gengið er í gegnum óléttu á heimavelli. Það sem hefur komið mér í opna skjöldu er áhuginn, já eða athyglin sem líkami óléttrar konu fær. Sérstaklega svona á lokasprettinum. Það er eins og að það sé skotleyfi á útlit óléttra kvenna. Fáir hika við að segja sína skoðun á stækkandi ummáli þeirra. Sjaldan eða aldrei hef ég verið jafn meðvituð um útlit mitt. Meðvituð um kúluna sem því miður gengur lítið að reyna að klæða af sér núna. Ég get hins vegar ekki gert upp við mig hvort mér finnist þessi athygli þægileg eða ekki. Auðvitað er gaman að heyra úr öllum áttum að maður líti vel út eða að maður sé nettur, beri þetta vel og svo framvegis. Það er alltaf gaman að fá hrós og ekki síst núna þegar sjálf spegilmyndin kemur manni spánskt fyrir sjónir. Svo eru það bannorðin „myndarleg“, „blómstra“ og „stór“ sem fá mann til að glotta vandræðalega og gott ef ekki rúlla augunum smá í leiðinni. Það er þunn lína milli þess að hrósa og hreinlega móðga, sérstaklega þegar um ræðir einstakling sem er með hormónasveiflur sem gjarna er líkt við jarðsprengjusvæði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Álfrún Pálsdóttir Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun