Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar 22. október 2026 22:03 Umboðsmaður Alþingis birti 22. júlí 2026 álit sem skiptir máli fyrir alla þá sem vilja bera ættarnafn án þess að eiga til þess sjálfkrafa rétt. Hver á rétt á ættarnafni? Samkvæmt 5. mgr. 8. gr. mannanafnalaga nr. 45/1996 má maður sem bar ættarnafn samkvæmt þjóðskrá við gildistöku laganna, eða í gildistíð eldri laga nr. 37/1991, bera það áfram. Sama gildir um niðja hans. Rétturinn byggist því á tvennu: umsækjandi þarf að vera niðji nafnberans og nafnið þarf að hafa verið skráð fyrir gildistöku laganna því 7. mgr. 8. gr. bannar fortakslaust að ný ættarnöfn séu tekin upp hér á landi. Málið Kona vildi taka upp ættarnafn móðurömmu sinnar, sem hafði alið hana upp en amman lést árið 1990. Þar sem hún lést áður en lögin frá 1991 tóku gildi átti konan ekki rétt á nafninu samkvæmt 5. mgr. og Þjóðskrá því synjaði umsókninni og ráðuneytið staðfesti synjunina. Ráðuneytið taldi jafnframt að 16. gr. laganna, sem heimilar nýtt kenninafn ef gildar ástæður mæla með því, tæki ekki til ættarnafna. Nafn er líka menning Nöfn eru ekki bara spurning um tungumál heldur hluti af menningu og sögu fjölskyldna. Ættarnöfn eru í eðli sínu ekkert síður íslensk en föður- og móðurnöfn, og mörg þeirra eru af íslenskum rótum. Fyrir konuna í málinu snerist ættarnafn ömmunnar ekki um málfræði heldur um sjálfsmynd hennar og tengsl við þann sem ól hana upp, en það er einmitt þessi persónulegi þáttur sem umboðsmaður lagði áherslu á í áliti sínu. Niðurstaða umboðsmanns Umboðsmaður var ósammála ráðuneytinu. Ættarnöfn eru kenninöfn líkt og eftirnöfn þar sem einstaklingur kennir sig til móður eða föður og ákvæði 16. gr. mannanafnalaga útilokar þau ekki. Hefði ráðuneytið rétt fyrir sér þá “ … væri matskennd undantekningarregla 16. gr. að verulegu leyti þýðingarlaus hvað ættarnöfn snerti og í mótsögn við orðalag ákvæðisins, enda hefði sá sem uppfyllti skilyrði 5. mgr. 8. gr. þegar rétt til nafnsins á þeim grundvelli”. Ákvæði 7. mgr. 8. gr. um bann við upptöku nýrra ættarnafna stendur þó óhaggað. Þjóðskrá ber því að meta í hverju einstöku tilfelli hvort gildar ástæður séu fyrir hendi um upptöku ættarnafns í viðkomandi máli. Hvað þýðir þetta fyrir almenning? Ekki dugar lengur fyrir Þjóðskrá að synja umsókn eingöngu á þeirri forsendu að ættartengsl vanti í skilningi 5. mgr. 8. gr. Álitið er þó ekki opin heimild. Matið er áfram í höndum Þjóðskrár, kröfur til ástæðna umsækjandans fyrir því að taka upp ættarnafnið eru nokkuð ríkar og umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Sterk og vel rökstudd persónuleg tengsl við nafnið, eins og í þessu máli, geta átt þar heima. Rökstuðningur skiptir sköpum og margir kjósa að fá lögfræðilega aðstoð við að setja hann fram. Hvernig Þjóðskrá beitir álitinu í reynd kemur í ljós á næstu misserum. Þeir sem hafa fengið synjun um upptöku ættarnafns eða hafa hug á að leita eftir upptöku ættarnafns ættu að kanna stöðu sína og undirbúa umsóknina eða endurupptökubeiðnina vel. Höfundur er lögmaður hjá Lögmönnum Granda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar