Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir, Elsa Dögg Benjamínsdóttir, Fríður Pétursdóttir, Guðlaugur Kristmundsson, María Dröfn Egilsdóttir og Sigurgeir B. Þórisson skrifa 22. október 2026 12:01 Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) fer með eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt er á grundvelli barnaverndarlaga. Þó fósturforeldrar álíti sig alla jafna fjölskyldur fósturbarna eru þau sem gerast fósturforeldrar álitin þjónustuveitendur af GEV. Þó barnaverndarþjónusta hafi eftirlitsskyldu með líðan og aðbúnaði barns í fóstri hefur GEV líka það lögbundna hlutverk að hafa aukatekið eftirlit með því uppeldi, umönnun og umhyggju sem fósturforeldrar veita fósturbörnum. Hvernig fær fólk leyfi stjórnvalda til að taka börn í fóstur? Fósturforeldrar eiga að hafa leyfi til að taka börn í fóstur. Leyfið er ekki innantómur bréfsnepill heldur tákn þess að viðkomandi sé talinn geta veitt barni sem komi úr ótryggum aðstæðum eða hefur átt við erfiðleika að etja, trygga umönnun og öryggi. Leyfið er vottun á að viðkomandi hafi staðist almennar kröfur til fósturforeldra um að búa við góða heilsu, stöðugleika og fjárhagslegt öryggi. Viðkomandi hafi farið í gegnum hæfnismat, farið í gegnum úttekt á ýmsum högum sínum, fengið jákvæðar umsagnir, farið í gegnum stranga sjálfsskoðun undir handleiðslu og sótt faglegt námskeið til þess eins að gerast fósturforeldri. Fósturforeldrar dagsins í dag fengu fyrst leyfi til að taka börn í fóstur frá einni af tveimur stofnunum. Barnaverndarstofu eða GEV. Furðuleg saga skipulagsbreytinga í leyfismálum Fram til ársins 2022 var það Barnaverndarstofa sem sá um útgáfu á leyfum til að taka börn í fóstur en leyfi útgefin af Barnaverndarstofu voru ótímabundin. Í ársbyrjun 2022 var Barnaverndarstofa lögð niður en tvær stofnanir tóku við hlutverkum hennar. Erfingi Barnaverndarstofu í flestum málum var Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) sem skyldi áfram vera fósturforeldrum innan handar um fræðslu og faglegan stuðning, halda skrá yfir þau sem hefðu leyfi til að taka börn í fóstur og sinna flestum veigamestu verkefnanna gagnvart þeim sem myndu sækja um slík leyfi. Engu að síður skyldi GEV taka á móti á móti umsóknum um slík leyfi og vera sá aðili sem gæfi þau endanlega út. Leyfi útgefin af GEV skyldu gild til 5 ára í senn og háð því að fósturforeldrar endurnýjuðu þau aftur innan þess tíma. Samhliða þessum breytingum var lögfest að útgefin leyfi frá Barnaverndarstofu skyldu falla úr gildi í árslok 2024 og að fósturforeldrar með slík leyfi skyldu sækja um endurnýjað leyfi frá GEV fyrir þann tíma.Ábyrgð á fólki skilin eftir í dauðri stofnun GEV hefur aldrei gengist við því að það hafi verið á þeirra ábyrgð að tryggja án nokkurs vafa vitneskju tæplega 300 starfandi fósturheimila þess tíma um þesar gríðarlega áhrifamiklu breytingu á þeirra líf og hagi. Í janúar 2024 áttaði stofnunin sig á því að nánast ekkert fósturforeldri með leyfi frá Barnaverndarstofu hefði sótt um endurnýjun leyfis síns hjá GEV og setti því saman bréf til að upplýsa fósturforeldra um þessar breytingar, sem skynsamlegra hefði verið að gera strax þann 1. janúar 2022. Stofnunin sendi bréfið reyndar ekki fósturforeldrum heldur BOFS, barnaverndarþjónustum og að endingu Félagi fósturforeldra þar sem GEV óskaði þess að þeir aðilar yrðu boðberar þessarra óvinsælu og óþægilegu frétta til fósturforeldra. Félag fósturforeldra benti stofnuninni á að betri leiðir væru færar s.s. að senda fólki bréf í opinbert rafrænt pósthólf eða með ábyrgðarpósti. Nú er hins vegar orðið ljóst að GEV þykist enga ábyrgð hafa gagnvart handhöfum leyfa frá Barnaverndarstofu. Í skýrslu sinni í sumar lýsti GEV því yfir að 125 heimili uppfylltu ekki skilyrði þess að teljast fósturheimili því þau hefðu ekki gilt leyfi frá GEV. Stofnunin sagðist áætla að stór hluti þessa heimila hefðu áður fengið útgefið leyfi frá Barnaverndarstofu en lét því þó ósvarað hve mörg þeirra það væru. GEV viðurkennir í skýrslunni að stofnunin hafi aldrei búið yfir heildarlista fósturforeldra sem áður höfðu fengið útgefið leyfi frá Barnaverndarstofu. Þá afsökun höfum við hjá félaginu heyrt lengi en stofnunin notaði hana gjarnan til að verjast því að fylgja skynsamlegum ábendingum okkar um hvernig mætti best upplýsa fósturforeldra með þeim hætti sem áður var nefndur. Við höfum reyndar aldrei skilið að það hafi verið óyfirstíganleg hindrun fyrir arftaka stofnunar að leita uppi lista sem á að hafa verið til hjá forveranum. En í janúar 2024 tjáði GEV okkur að stofnunin ætti að fá slíkan lista frá BOFS en fyrst ætti að uppfæra hann. GEV fékk þó greinilega aldrei nokkurn lista og telur félagið einu rökréttu skýringuna á því að slíkur listi hafi aldrei nokkurn tímann verið til. GEV er tíðrætt um í skýrslu sinni að forsenda þess að stofnunin geti sinnt eftirlitsskyldu sinni gagnvart fósturforeldrum sé að þau hafi gilt leyfi útgefið af stofnuninni sjálfri. Þannig virðist sem að ábyrgð á leyfishöfum hafi ekki flust ásamt ábyrgð á leyfismálum til GEV frá Barnaverndarstofu heldur orðið eftir í dauðri stofnun. Ábyrgð ríkisins á ekki að geta runnið út Það er þó líka annar mikilvægur pappír í fósturmálum sem lög krefjast þess að fósturforeldri hvers barns fái frá stjórnvöldum. Því barnaverndarþjónustur verða að tryggja að gerður sé formlegur samningur við fósturforeldra um fóstur hvers barns. Barnaverndarþjónustum ber jafnframt að tilkynna GEV um gerð allra slíkra samninga. GEV hefur viðurkennt t.d. í áðurnefndri skýrslu að gildistími slíkra samninga sé óháður gildistíma leyfa stofnunarinnar. Sveitarfélag gerir þannig samning um að fóstra barn á grundvelli barnaverndarlaga við fósturforeldri sem áður hefur fengið leyfi til að taka barn í fóstur frá ríkisstofnun leyfismála og bera þannig bæði sveitarfélag og ríki hluta ábyrgðar á þeirri ráðstöfun. Ábyrgð ríkisins á ekki að geta gufað upp við það að gerðar séu breytingar á stofnana skipulagi né heldur við það að gildistími leyfis renni út ef gildistími samnings um fóstur, sem byggir á því leyfi, gerir það ekki. Hvað ef börn í dag yrðu fyrir álíka ofbeldi og í Bakkakoti? Okkur þykir margt athugvert í skýrslu GEV en ekkert misbauð okkur eins og eftirfarandi málsgrein: “Í kjölfar viðtala við ungmennin taldi GEV tilefni til að fylgja eftir frásögn eins þeirra af neikvæðri reynslu á fósturheimili. Ætlunin var að stofna til frumkvæðiseftirlits vegna fósturforeldranna en í ljós kom að aðilarnir voru ekki með fósturleyfi GEV og var því ekki lagagrundvöllur fyrir því að kanna skilyrði leyfis” Það er því ljóst að GEV er ekki stofnun sem hefur eftirlit með velferð barna eða tekur forystu á gæðamálum heldur stofnun sem veltir bara fyrir sér lagatæknilegum atriðum um skilyrði eigin leyfa. Setjum þetta í samhengi við ofbeldið sem einstaklingar hafa lýst bæði opinberlega og í einkasamtölum við okkur að þau hafi orðið fyrir sem börn í Bakkakoti og ímyndum okkur að það ætti sér stað í nútímanum. Ef eitthvað þeirra barna myndi segja frá neikvæðri reynslu sinni eða upp kæmist um hrottalega meðferð barna í slíkum aðstæðum. Myndi eftirlitsstofnun ríkisins þá horfa fram hjá sársauka barna og brotum gegn þeim? Myndi engu gilda að barnaverndarþjónustur væru að vista börn þar með formlegum samningum um slíkar vistanir?Hefði það eitt ráðið viðbrögðum GEV hver tengsl fólksins væru við nýjustu útgáfu leyfis ríkisvaldsins? Hefði GEV látið það ógert að hefja frumkvæðisathugun því það hefði jú verið Barnaverndarstofa en ekki GEV sem veitti þeim leyfi til að taka börnin sem þau væru með í fóstri? Eða ef gildistími útgefins leyfis frá GEV væri útrunninn? Hefði samfélagið sætt sig við að stofnunin myndi starfa einum degi lengur eftir það? Við krefjumst betri stjórnsýslu eða heilbrigðrar skynsemi í það minnsta Það vekur furðu okkar að GEV sé orðið svo einblínt á skipulagsbreytingar leyfismála að stofnunin missi sjónar af velferðinni sem lög boða að þau eigi að hafa eftirlit með og börnunum sem eiga að njóta hennar. Við teljum að stjórnvöld hafi ekki sinnt innleiðingu laga um GEV nægilega vel og teljum þann fjölda fósturforeldra sem ekki endurnýjuðu leyfi sín, né höfðu nokkra hugmynd um að þeim bæri að gera svo, sönnun þess. Það rýrir traust okkar á stofnunina að hún geti ekki gengist við ábyrgð sinni í því heldur reyni að varpa henni á alla aðra aðila innan fósturkerfisins og hafi svo skellt skuldinni endanlega á fósturforeldra með þeim hætti að allt samfélag fósturforeldra á Íslandi var gert tortryggilegt í fjölmiðlaumfjölluninni sem fylgdi útgáfu skýrslunnar í sumar, fyllilega að óþörfu. Við teljum það ekki standast skoðun að ríkisvaldið geti firrað sig ábyrgðar á fósturforeldrum sem sinna börnum fyrir tilstuðlan þess að sama ríkisvald veitti þeim áður leyfi til þess. Bara vegna þess að stofnun ríkisvaldsins sem ber ábyrgð á leyfismálum heiti nú GEV en ekki Barnaverndarstofa. Það er grátlegt hve oft GEV lokar augunum fyrir vandamálum sem blasa við þeim. Þau viðurkenna tilvist þeirra án þess að fara í frekari athugun. Þegar einstaklingar leita til stofnunarinnar veltir GEV sér fremur upp úr formfestu tilkynninga heldur en efni þess sem tilkynnt sé um. Þá bregst stofnunin heldur ekki við þegar við fundum með þeim og segjum þeim bæði hvaða vandamál megi finna í kerfinu og hvar. Jafnvel þegar GEV mætir á málþing þar sem bæði við og Háskóli Íslands færum sönnur fyrir því að barnaverndarþjónustur sinni ekki lágmarks skyldu sinni um heimsóknir á fósturheimili hefur GEV ekki frumkvæði að frekari athugun á þeim málum fyrr en ári síðar og þá eingöngu vegna þess að boðun um að gera slíkt barst frá ráðuneytinu. Við erum orðin langþreytt á slæmri stjórnsýslu í fósturmálum. Það ástand sem nú ríkir tryggir hvorki ásættanlegt né skynsamlegt eftirlit. Það er heldur ekki til þess fallið að auka gæði í velferðarmálum meðal þess hóps barna sem þarf einna sárast á því að halda. Höfundar eru stjórnarfólk og framkvæmdastjóri Félags fósturforeldra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar