Frumraun handritshöfundar sem leikstjóra Sara McMahon skrifar 8. ágúst 2013 10:00 Jason Statham fer með hlutverk fyrrverandi hermanns í kvikmyndinni Hummingbird. Hann þykir sýna á sér nýjar hliðar í hlutverkinu.
Hummingbird er fyrsta kvikmynd Stevens Knight sem leikstjóra. Knight á að baki langan og farsælan feril sem handritshöfundur og samdi meðal annars handritin að kvikmyndunum Dirty Pretty Things og Eastern Promises, sem skartaði Viggo Mortensen og Naomi Watts í aðalhlutverkum. Hummingbird segir frá Joseph Smith, hermanni sem snýr heim til Englands frá Afganistan en á í erfiðleikum með að aðlagast lífinu á nýjan leik. Hann endar á götunni og eftir að ráðist er á hann að tilefnislausu brýst Smith inn á ókunnugt og ríkmannlegt heimili þar sem hann gerir að sárum sínum og hvílist. Eigandi íbúðarinnar er að heiman og ákveður Smith að dvelja áfram í íbúðinni og gera um leið tilraun til þess að ná tökum á lífi sínu að nýju. Þegar vinkona hans er myrt af glæpamanninum Max Forrester hyggst Smith hefna hennar með ófyrirséðum afleiðingum.Með helstu hlutverk fara Jason Statham, Agata Buzek, Christian Brassington, Vicky McClure, Benedict Wong og Ger Ryan. Myndin var að mestu tekin upp í London að nóttu til og fóru tökur meðal annars fram í hverfum þar sem heimilislaust fólk heldur mikið til. Statham lagðist í mikla rannsóknarvinnu er hann bjó sig undir hlutverkið og ræddi til að mynda við fyrrverandi hermenn um þau vandamál sem þeir standa frammi fyrir að herþjónustu lokinni. Kvikmyndin fær sæmilega dóma og deilir fólk þá helst um hlutverk Stathams, en sumir vilja meina að hann njóti sín best í hasarhlutverkum. Hummingbird hlýtur 5,0 í einkunn á vefsíðunni Rottentomatoes og 6,2 á Imdb.
Mest lesið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Fleiri fréttir Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira