Casillas gæti fengið að spila nokkra deildarleiki 21. febrúar 2014 11:15 Iker Casillas ver mark Real í bikarnum og í Meistaradeildinni. Vísir/Getty
Iker Casillas, markvörður Real Madrid og spænska landsliðsins í fótbolta, gæti fengið að spila nokkra leiki í deildinni áður en tímabilið klárast. Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, hefur fylgt þeirri vinnureglu allt tímabilið að Diego Lopez verji mark liðsins í spænsku 1. deildinni en Casillas spilar alla leiki í bikar og í Meistaradeildinni. Það hefur virkað hingað til en liðið er á ótrúlegu skriði og ekki búið að tapa í 25 leikjum í röð í öllum keppnum. Síðast tapaði það fyrir erkifjendunum í Barcelona 26. október á síðasta ári. Einn galli er þó á kerfinu því ef Real Madrid kemst alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar verður mánuður frá því Casillas spilaði síðast leik í úrslitum spænska konungsbikarsins gegn Barcelona. Það er ansi tæpt að tefla fram markverði sem ekki hefur spilað í einn mánuð komist liðið í stærsta leik tímabilsins. Carlo Ancelotti veit af þessu og er með lausn í huga. „Ég útiloka það ekki að láta Iker spila einn eða tvo deildarleiki. Við ræðum það ef við komumst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar,“ sagði Ítalinn við blaðamenn í gær.Diego Lopez á flugi í deildarleik með Real Madrid.Vísir/Getty
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira