Keflavík nældi í lykilleikmann Hamarsliðsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2014 11:11 Marín Laufey Davíðsdóttir. Vísir/ÓskarÓ
Kvennalið Keflavíkur fékk mikinn liðstyrk í gær þegar Marín Laufey Davíðsdóttir samdi til tveggja ára en hún átti mjög gott tímabil með Hamar í Dominos-deild kvenna í körfubolta í vetur. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Keflavíkur.Marín Laufey Davíðsdóttir er 18 ára gamall framherji (verður 19 ára í maí) sem var með tvennu að meðaltali með Hamar í vetur, skoraði 12,2 stig og tók 11,0 fráköst að meðaltali í leik. Marín sýndi hvað hún gat í leikjunum á móti Keflavík þar sem hún var með 15,8 stig að meðaltali í leik. „Marín Laufey, sem leikið hefur með Hamri síðastliðin ár er mikill baráttujaxl og mun hún sannarlega koma til með að styrkja Keflavíkurliðið mikið, þá sérstaklega varnarlega og í frákastabaráttunni undir körfunni," segir í frétt á heimasíðu Keflavíkur. Það voru aðeins þrír íslenskir leikmenn í deildinni með fleiri tvennu en Marín í deildarkeppninni og einn þeirra var Keflvíkingurinn Bryndís Guðmundsdóttir. Þær tvær ættu því að mynda flott tvíeyki inn í teig á næsta tímabili. Keflvíkingar hafa verið duglegir að semja við sína leikmenn en á heimasíðu Keflavíkur kemur fram að þær Ingunn Embla Kristínardóttir, Sandra Lind Þrastardóttir, Lovísa Falsdóttir, Katrín Fríða Jóhannsdóttir sem og tvíburasysturnar Bríet Sif Hinriksdóttir og Sara Rún Hinriksdóttir hafa allar gert nýjan tveggja ára samning.Marín Laufey Davíðsdóttir er öflug í fráköstunum.Vísir/Daníel
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira