Vonarstræti hlaut meirihluta atkvæða akademíumeðlima en kosningu lauk á miðnætti í gær. Kosningin fór fram rafrænt og kosið var á milli þeirra fjögurra íslensku kvikmynda sem uppfylltu það skilyrði Bandarísku kvikmyndaakademíunnar að hafa verið frumsýndar á tímabilinu 1. október 2013 til 30. september 2014.
Auk Vonastrætis voru það myndirnar Harry & Heimir: Morð eru til alls fyrst, Málmhaus og París norðursins sem komu til álita.

Handritið skrifuðu þeir Birgir Örn Steinarsson og Baldvin Z, sem leikstýrir einnig myndinni. Framleiðendur eru þeir Júlíusi Kemp og Ingvari Þórðarsyni hjá Kvikmyndafélagi Íslands.
Tvær íslenskar kvikmyndir hafa hlotið tilnefningu til Óskarsverðlauna. Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson var tilnefnd árið 1992 í flokknum besta erlenda kvikmyndin og árið 2006 var Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson tilnefnd í flokknum besta leikna stuttmyndin.