Tapleikir hjá LeBron og Kobe | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. nóvember 2014 07:37 Vísir/Getty
Houston vann sinn fyrsta leik í röð í NBA-deildinni í nótt en liðið mætti Miami Heat og hafði betur, 108-91. James Harden átti enn einn stórleikinn fyrir lið Houston en hann var með 25 stig, tíu stoðsendingar og níu fráköst. Trevor Ariza bætti við nítján stigum. Leikurinn var jafn framan af en 13-0 sprettur Houston seint í fjórða leikhluta innsiglaði sigur liðsins. Chris Bosh skoraði 21 stig fyrir Miami sem tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í nótt. Dwyane Wade var með nítján. Þess má geta að Houston hefur á tímabilinu til þessa skorað fleiri stig utan þriggja stiga línunnar (213 stig) en innan hennar (198). Cleveland tapaði fyrir Portland, 101-82, á útivelli þar sem stórstjarnan LeBron James skoraði einungis ellefu stig. Damien Lillard skoraði 27 stig fyrir Portland sem hafði tapað tveimur leikjum í röð. Hvorki James né Kyrie Irving náðu sér á strik íleiknum. James nýtti fjögur af tólf skotum sínum og Irving aðeins þrjú af sautján. Kobe Bryant skoraði 39 stig fyrir LA Lakers sem mátti samt sætta sig við tap fyrir Phoenix Suns, 106-112. Gerald Green skoraði 26 stig fyrir Phoenix þrátt fyrir að hafa byrjað á bekknum. Lakers hefur tapað öllum fimm leikjum sínum til þessa og hefur ekki byrjað verr síðan 1957 er liðið tapaði sjö fyrstu. Bryant tók alls 37 skot í leiknum en nýtti fjórtán þeirra. Toronto vann Oklahoma City, 100-88, sem er enn án Kevin Durant og Russel Westbrook sem eru meiddir. DeMar DeRozan skoraði sextán stig fyrir kanadíska liðið.Úrslit næturinar: Indiana - Milwaukee 81-87 Miami - Houston 91-108 New York - Washington 83-98 Toronto - Oklahoma City 100-88 Chicago - Orlando 98-90 New Orleans - Charlotte 100-91 Portland - Cleveland 101-82 LA Lakers - Phoenix 106-112
NBA Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Fleiri fréttir Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Sjá meira