Langþráður sigur Verona | Roma aðeins einu stigi frá toppnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. desember 2014 16:13 Leikmenn Verona fagna marki Luca Toni. Emil er fyrir miðju með sárabindi um höfuðið. vísir/getty
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir Verona sem bar sigurorð af Udinese, 1-2, í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þetta var fyrsti sigur Verona í átta leikjum. Antonio Di Natale kom Udinese yfir á 31. mínútu, en önnur gömul kempa, Luca Toni, jafnaði fyrir Verona í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Þetta var fimmta deildarmark þessa 37 ára gamla framherja í vetur. Það var síðan Grikkinn Lazaros Christodoulopoulos sem skoraði sigurmark Verona strax í byrjun seinni hálfleiks. Emil stóð fyrir sínu inni á miðjunni hjá Verona, en 79,3% sendinga íslenska landsliðsmannsins rötuðu á samherja í leiknum. Roma minnkaði forystu Juventus á toppi deildarinnar niður í eitt stig með 0-1 sigri á Genoa á útivelli. Radja Nainggolan skoraði eina mark leiksins á 40. mínútu, en níu mínútum áður hafði samherji hans, Adem Ljajic, misnotað vítaspyrnu. Juventus, sem gerði jafntefli við Sampdoria fyrr í dag, er með 36 stig í toppsætinu, en Roma kemur þar á eftir með 35 stig. Þá gerðu Parma og Cagliari markalaust jafntefli, en bæði lið eru í fallsæti.
Ítalski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Sport Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Fleiri fréttir „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Sjá meira