Pepe gaf nágrönnum sínum níu tonn af mat Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2014 14:47 Pepe fagnar marki með Real Madrid. Vísir/Getty
Pepe, varnarmaður Real Madrid og portúgalska landsliðsins, sýndi það og sannaði að hann er mikill mannvinur þegar hann kom færandi hendi til fátækra íbúa Las Rozas hverfisins í Madrid á Spáni. Pepe, sem hefur fengið tólf rauð spjöld á ferlinum, er miklu þekktari fyrir tuddaaskap og æðisköst inn á vellinum en að taka að sér hlutverk miskunnsama Samverjans. Pepe er 31 árs gamall og kemur sjálfur úr verkmannafjölskyldu í Brasilíu. Hann greiddi fyrir níu tonn af mat sem verður dreift til íbúa Las Rozas hverfisins svo þeir geti notið jólahátíðarinnar. Pepe býr einmitt í hverfinu og vildi passa upp á það að nágrannar sínir gætu notið jólanna. Þetta er heldur ekki í fyrsta sinn sem Pepe bregður sér í hlutverk jólasveinsins því í fyrra gaf hann fimm tonn af mat til íbúa Las Rozas hverfisins. Pepe mætti þá sjálfur til að láta fólkið í hverfinu fá sína matarpakka. Pepe hefur spilað með Real Madrid frá árinu 2007 en hann hefur unnið átta titla með félaginu þar af Meistaradeildina í vor og spænsku deildina bæði 2008 og 2012. Pepe verður í sviðsljósinu í kvöld þegar Real Madrid mætir Almeria í spænsku úrvalsdeildinni en leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Leikurinn hefst klukkan 19.45. Þetta er síðasti leikur Real Madrid liðsins fyrir Heimsmeistarakeppni félagsliða í Marokkó.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira