Lífið

Dagur í lífi Fríðu Maríu sminku

Marín Manda skrifar
Fríða María Harðardóttir
Fríða María Harðardóttir
Fríða María Harðardóttir er ein af eftirsóttustu förðunarfræðingum landsins en hún hefur yfirumsjón með förðun fyrirsætanna á Reykjavík Fashion Festival um helgina. Fríða María hefur átt viðburðaríka viku eins og flestir sem að koma að tískuhátíðinni og Lífið fékk að fylgjast með.

Ég barðist í gegnum rok og rigningu með jógadýnuna undir arminum og var mætt í Astanga yoga í Yoga Shala kl. 6.45 í morgun. Það var frábær byrjun á deginum. 

Um morguninn fór ég á fund vegna Reykjavík Fashion Festival með Guðnýju Kjartansdóttur, verkefnastjóra RFF, og Maríu Guðvarðardóttur, vörumerkjastjóra MAC á Íslandi.

Svo fór ég upp í MAC og fékk hjálp með tilraunir með efni og áferð hjá fróðleiksbrunninum Hörpu Káradóttur verslunarstjóra og starfsmanni hennar, Ástríði Einarsdóttur. 

Ég hitti Hekluklúbbinn minn góða, eða það sem eftir er af honum, í hádeginu á Icelandic Fish and Chips. Ásamt mér eru þær Líf Magneudóttir og Sigurlaug Kristjánsdóttir í klúbbnum, en gaman er að geta þess að Líf þessi vermir 2. sætið á framboðslista Vinstri grænna í Reykjavík. Við höfðum því margt að ræða, mest um tískubransann og skólamál í borginni. 

Þá skrapp ég á tónleika í Salnum í Kópavogi þar sem dóttir mín, Sunneva Líf, var að spila á blokkflautu með flautukvartettinum sínum ásamt sellóleikara og tveimur hörpuleikurum. Róandi stund það.

Um kvöldið blikkaði ég fyrirsætuna Önnu Þóru Alfreðsdóttur með mér upp á vinnustofu til að gera smá tilraunir með förðun fyrir sýningar REY og Ziska, sem ég var ekki alveg búin að hanna til fulls. Því miður má ekkert sýna fyrr en á morgun, laugardag, en svona var kittið mitt. 

RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.