Verður Suárez bitlaus eftir bannið? Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. október 2014 09:00 Luis Suárez Vísir/Getty
Knattspyrnuleikir í Evrópu gerast ekki stærri en El Clásico. Þar mætast tvö af stærstu og bestu liðum heims; Real Madrid og Barcelona. Fyrsta viðureign þessara fornu erkifjenda fer fram á laugardaginn klukkan 16.00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. „Þetta er bara knattspyrnuveisla. Þetta er það geggjaðasta sem sést í fótboltanum á hverju tímabili,“ segir Guðmundur Benediktsson, knattspyrnulýsandi á Stöð 2 Sport, um leikinn við Fréttablaðið, en Gummi Ben mun að sjálfsögðu lýsa þessum stórleik. Sálfræðistríðið hefur verið í fullum gangi fyrir leikinn; Börsungar þar duglegri að láta gamminn geisa en óvinir þeirra úr höfuðborginni. Fréttum fyrir leikinn fækkaði reyndar alveg um 30 prósent eða svo þegar José Mourinho lét af störfum sem þjálfari Real. Honum leiddist aldrei að skjóta á Börsunga, reyndar leiðist honum bara ekkert að tala yfirhöfuð. Forseti brasilíska félagsins Santos lét heyra í sér í vikunni og sagði að Neymar hefði kosið sjálfur að spila fyrir Barcelona frekar en Real Madrid. Hjálp í sálfræðihernaðinum úr óvæntri átt en vel þegin.Suárez, Suárez, Suárez Allt í kringum El Clásico að þessu sinni snýr að úrúgvæska framherjanum Luis Suárez sem Barcelona keypti fyrir fúlgur fjár frá Liverpool í sumar. Það vissi að þar væri á ferð strákur sem á við erfiðleika að stríða, en það bjóst nú væntanlega við að hann væri búinn að spila leik fyrir félagið áður en hann gerði endanlega allt vitlaust í knattspyrnuheiminum. Þeir sem eru með módem heima hjá sér og hafa internet-aðgang eða lesa dagblöð vita vel að Luis Suárez hefur verið í löngu keppnisbanni eftir að smakka ítalskt á HM í Brasilíu í sumar. Luis Enrique, þjálfari Barcelona, er búinn að gefa það út að Suárez muni koma við sögu í leiknum. Ekki vænkast hagur mótherja Barcelona þegar Messi, Neymar og Suárez verða komnir á fullt, en það er einmitt spurningin. Hversu mikið getur Luis Suárez gefið af sér í leiknum? Það er ekkert grín að spila alvöru fótboltaleik eftir fjögurra mánaða frí og hvað þá einn stærsta leik ársins. Munurinn er vissulega sá að hann er ekki að koma úr meiðslum og þurfti enga endurhæfinu; Suárez hefur verið að æfa og spila æfingaleiki allan tímann. Deilt hefur verið um í hversu góðu formi Suárez er, en hann var úthrópaður silakeppur af spænskum fjölmiðlum þegar hann spilaði fyrsta æfingaleikinn. „Suárez er ekki í yfirvigt. Alls ekki. Þetta eru bara þið, fjölmiðlarnir. Hann er í eðlilegri þyngd eins og hjá Liverpool,“ sagði Enrique, sem var ekki skemmt.Cristiano Ronaldo fagnar marki á móti Liverpool.Vísir/GettyAuðveldari vika hjá Barca Bæði Barcelona og Real Madrid spiluðu í Meistaradeildinni í vikunni, og hefur Cristiano Ronaldo látið óánægju sína í ljós með að El Clásico-fari fram á laugardegi þegar Real spilaði á miðvikudegi. Vikan var nefnilega öllu auðveldari fyrir Barcelona sem mætti Ajax á þriðjudaginn og það á heimavelli. Luis Enrique vildi ekki viðurkenna að hann væri að hvíla menn fyrir El Clásico, en samt voru Jérémy Mathieu, Sergio Busquets og Gerard Pique hvíldir. Þá tók Enrique Messi, Neymar og Iniesta út af við fyrsta tækifæri. Real Madrid þurfti að spila stórleik í sínum riðli gegn Liverpool á Englandi. Það vann auðveldan sigur, en fékk degi minna í hvíld, þurfti að fljúga aftur heim og spila á sínu besta liði.Múrað fyrir – skora mikið Bæði Barcelona og Real Madrid hafa verið þekkt fyrir öflugan sóknarleik undanfarin ár og það hefur ekki breyst. Luis Enrique hefur aftur á móti látið sína menn í Barcelona prófa nýjan hlut; að fá ekki á sig mark. Þegar átta umferðum er lokið í deildinni er Barcelona búið að vinna sjö leiki, gera eitt jafntefli, skora 22 mörk og fá ekki á sig eitt einasta. Þar munar mikið um komu franska varnarmannsins Jérémy Mathieu frá Valencia; miðvörður af gamla skólanum sem gerir þetta einfalt. Engar krúsídúllur; bara stendur sína vakt og sparkar boltanum burt ef það eru vandræði. Hann og Javier Mascherano mynda öflugt miðvarðapar.Luis Suarez.Vísir/GettyReal Madrid hefur aðeins fengið á sig rétt rúmt mark í leik að meðaltali, en skorar eins og enginn sé morgundagurinn. Þrjátíu mörk komin í átta leikjum og er annað hægt með svona stormsveit fyrir framan miðlínuna? Ronaldo skorar í hverjum leik og hinn gríðarlega vanmetni Karim Benzema blómstrar með aðstoð Toni Kroos og James Rodríguez.Barca vinnur með Suárez „Ég myndi láta Luis Suárez byrja leikinn,“ segir Guðmundur Benediktsson, beðinn um að spá í spilin fyrir þennan stórleik. „Ég myndi vera með Messi í holunni, Suárez frammi með Neymar vinstra megin og Ivan Rakitic hægra megin. Busquets og Iniesta á miðjunni, Xavi er búinn,“ segir Guðmundur sem vill sjá Real-liðið óbreytt fyrir utan að Frakkinn ungi Rafael Varanë þarf að víkja fyrir Sergio Ramos í vörninni.Lionel Messi fær góða þjónustu á æfingu Barcelona.Vísir/GettyGuðmundur telur Barcelona sigurstranglegra þrátt fyrir að vera á útivelli. Það hefur reyndar unnið níu af síðustu sautján leikjum á Bernabéu og þekkir því vel að vinna í Madríd. Möguleikar Barcelona liggja þó í því að spila Suárez sem mest. „Barcelona vinnur með Suárez í byrjunarliðinu. Ég held að pressan fremst á vellinum verði bara of góð með hann þarna því hann getur hlaupið endalaust. Þarna er Barcelona líka komið með mann sem getur leitt línuna. Hann býr til pláss fyrir Messi sem hefur verið í erfiðleikum með að finna það undanfarið. Varnarmennirnir geta bara hópað sig í kringum hann,“ segir Guðmundur, en Real-liðið segir hann sterkara á miðjunni. „Eftir komu Toni Kroos er Real með sterkari miðju. Hann er alveg frábær, en hann og Modric spila mjög vel saman með Isco og James eiginlega á köntunum í 4-4-2 eins og á Anfield. Þar fékk Ronaldo bara að leika lausum hala. Það hentar honum líka ágætlega,“ segir Guðmundur Benediktsson.
Spænski boltinn Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Fleiri fréttir Tvær koma inn fyrir leikinn á móti heimsmeisturunum Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ „Þær eru velkomnar á Laugardalsvöll“ Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins „Það væri ógeðslega gaman að ná að vinna Spánverjana“ „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Með áhyggjur af að mæta Íslandi en Messi mun spila Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ HM-minning: Eina tap Þjóðverja var á móti Þjóðverjum Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Dumfries skrifar undir hjá Real Madrid Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Ísland mætir heimsmeisturum með nokkurra klukkutíma millibili Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM FIFA: Fær ekki að dæma á HM vegna komubannsins Olise með þrennu en Mbappé náði ekki að jafna markametið Gakpo skoraði tvö mörk í fimmtugasta landsleiknum Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Platini með sakamálaákæru á hendur forseta FIFA Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Van Persie rekinn frá uppeldisfélaginu Sjá meira