Öruggt hjá Barcelona í Bilbao Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 8. febrúar 2015 11:26 Messi og Neymar fagna mark Messi Vísir/Getty
Barcelona vann öruggan 5-2 sigur á Athletic Club frá Bilbao á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.Lionel Messi kom Barcelona á bragðið með marki úr aukaspyrnu eftir stundarfjórðung. Skotið fór af varnarveggnum og í markið. Tíu mínútum síðar bætti Luis Suarez öðru marki við eftir sendingu frá Messi og ljóst að Athletic Club ætti litla möguleika gegn stórliðinu. Athletic Club náði þó að minnka muninn á 14. mínútu seinni hálfleiks þegar Mikel Rico skoraði af stuttu færi en það varð bara til þess að Barcelona keyrði upp hraðann á ný og gerðu gestirnir út um leikinn skömmu síðar. Fyrst skaut Messi í varnarmann og inn á 62. mínútu eða þremur mínútum eftir að Athletic minnkaði muninn. Tveimur mínútum síðar skoraði Neymar eftir sendingu Messi og staðan orðin 4-1. Heimamenn eru þekktir fyrir allt annað en að gefast upp og tveimur mínútum síðar minnkaði Oscar De Marcos muninn í tvö mörk. Eftir þessar ótrúlegu fimm mínútur hægðist á leiknum á ný eða allt þar til varamaðurinn Pedro skoraði fimmta mark Barcelona fjórum mínútum fyrir leikslok en varnarmaðurinn Etxeita var rekinn af leikvelli þegar stundarfjórðungur var eftir til að gera vonlaust verkefni enn erfiðara fyrir Athletic. Barcelona er í öðru sæti deildarinnar eftir 22 leiki, stigi á eftir Real Madrid. Athletic Club er í 13. sæti með 23 stig.
Spænski boltinn Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Fótbolti „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Serena Williams fagnaði sigri í endurkomunni: „Ég var stressuð“ Sport Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Fótbolti Fleiri fréttir Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 „Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Myndasyrpa: Sýndu af hverju þær eru bestar í heimi Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Benfica staðfestir að Mourinho taki við Real Madrid „Þessi leikur er gleymdur og grafinn“ Einkunnir íslensku stelpnanna: Linda kom með smá líf í seinni Uppgjörið: Ísland - Spánn 1-6 | Heimsmeistararnir léku sér í Laugardalnum Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Stelpurnar hennar Betu unnu stórt en ekki nógu stórt Atlético hafnaði risatilboði Real Madrid Tvær koma inn fyrir leikinn á móti heimsmeisturunum Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ „Þær eru velkomnar á Laugardalsvöll“ Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins „Það væri ógeðslega gaman að ná að vinna Spánverjana“ „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Með áhyggjur af að mæta Íslandi en Messi mun spila Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ HM-minning: Eina tap Þjóðverja var á móti Þjóðverjum Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Dumfries skrifar undir hjá Real Madrid Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Ísland mætir heimsmeisturum með nokkurra klukkutíma millibili Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Sjá meira