Skúli Jón samdi við KR til þriggja ára Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. febrúar 2015 17:09 KR-ingar fagna því að fá Skúla Jón heim. vísir/vilhelm
Knattspyrnumaðurinn Skúli Jón Friðgeirsson er genginn í raðir síns uppeldisfélags KR á nýjan leik, en hann skrifaði undir þriggja ára samning við vesturbæjarfélagið í dag. Þetta hefur verið í pípunum í nokkrar vikur, en Skúli Jón er búinn að æfa með KR síðustu vikur og þá sagðist hann líklega vera á heimleið í viðtali við Fréttablaðið á dögunum. Skúli Jón hefur hefur aðeins spilað með KR hér heima á ferlinum, en hann kom fyrst við sögu hjá liðinu í efstu deild árið 2005. Hann hefur í heildina spilað 125 leiki í deild og bikar fyrir KR-liðið og skorað í þeim fjögur mörk. Þessi öflugi varnarmaður yfirgaf KR sem Íslands- og bikarmeistari 2011 og samdi við Elfsborg. Hann varð Svíþjóðarmeistari á fyrsta ári en kom ekki við sögu í mörgum leikjum. Hann var lánaður til Gefle á síðasta tímabili þar sem hann fékk heldur ekki mikið að spila, en síðustu þrjú ár hjá honum í atvinnumennskunni hafa verið erfið. Heimkoma hans er þó mikill liðsstyrkur fyrir KR-liðið, en hann var einn albesti varnarmaður Pepsi-deildarinnar þegar hann fór. Hann var þá hluti af hinu firnasterka U21 árs landsliði Íslands sem fór á EM 2011 í Danmörku, en Skúli Jón á einnig að baki fjóra landsleiki fyrir Ísland. Þann síðasta spilaði hann árið 2012.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Anníe Mist verður ekki með í The Open af siðferðislegum ástæðum Sport Geir segir framkomu HSÍ við Dag alls ekki einsdæmi: „Á þessum bæ breytist lítið“ Handbolti Liverpool í tuttugasta og síðasta sæti í eyðslu Enski boltinn Framleiðslu nýs Football Manager hætt: „Fyrirgefiði, við brugðumst ykkur“ Fótbolti Vill að stuðningsfólkið syngi söng um sig og noti ABBA lag Enski boltinn Meistarar verja Brynjar: „Allt er þetta ástríða og væntumþykja“ Körfubolti Fyrsta snerting Neymars var á mjög viðkvæman stað Fótbolti „Þeir voru of góðir fyrir okkur“ Enski boltinn Liverpool mætir Newcastle á Wembley eftir stórsigur á Spurs Enski boltinn Dagur fær tækifæri á stóra sviðinu: Risa gluggi til að sýna mig og sanna“ Handbolti Fleiri fréttir Einar heim í Hafnarfjörðinn Húsvíkingurinn frá KR til Þróttar Framarar lausir við Frambanann Cousins búin að semja við Þrótt FH hreppir Rosenörn og Kötlu Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita „Það fór eitthvað leikrit í gang“ Ísfold Marý til liðs við Víking Reykjavíkurmeistarar KR byrja Lengjubikarinn á sigri Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Róbert Orri semur við Víkinga Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Guy Smit frá KR til Vestra Ekki hrifinn af tvöfaldri sekt frá KSÍ: „Af hverju að gera það?“ Íslandsmeistararnir unnu Þungavigtarbikarinn Vigdís Lilja seld til Anderlecht KR vann fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn annað árið í röð KR Reykjavíkurmeistari eftir öruggan sigur á Val Páll sækist ekki eftir endurkjöri hjá KR Norðurálsmótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár Atli Guðna auglýsir eftir strákum í fótbolta: „Markmiðið að hafa gaman“ Tvö af þremur félögum í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna eru frá Garðabæ Einbeittur brotavilji Víkinga Sjá meira