Berlusconi vill ekki að selja ráðandi hlut í AC Milan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2015 15:00 Silvio Berlusconi. Vísir/Getty
Silvio Berlusconi, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, hefur engan áhuga á því að selja ráðandi hlut í ítalska fótboltafélaginu AC Milan en í dag fréttist af risatilboði frá tælenskum kaupsýslumanni. Tælendingurinn Bee Taechaubol sem fer fyrir asíska einkahlutafélaginu Thai Prime Company Limited, hafði fyrr um daginn boðið Berlusconi einn milljarð evra fyrir meirihluta í félaginu. Tælenskir fréttamiðlar hafa sagt frá því að Bee Taechaubol vildi að minnsta kosti eignast fimmtíu prósent hlut í félaginu en hafði þó ekki áhuga á því að kaupa allt félagið af Silvio Berlusconi. Berlusconi, sem hefur átt AC Milan síðan snemma á níunda áratugnum, gaf frá sér yfirlýsingu í kjölfarið þar sem hann lýsti því yfir að hann sé ekki tilbúinn að selja meirihluta í AC Milan. AC Milan er í lægð en félagið hefur ekki unnið ítalska titilinn frá 2011. Liðið er nú í 11. sæti í deildinni eftir 1-1 jafntefli við Empoli um helgina. Liðið er 24 stigum á eftir toppliði Juventus. AC Milan er nú með sinn fjórða þjálfara á árinu ári en þrátt fyrir öll vandræðin innan vallar þá er félagið ennþá það tíunda ríkasta í heimi samkvæmt úttekt Deloitte í síðasta mánuði.
Ítalski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Sjá meira