Alfreð áður sakaður um fjársvik: Sveik fé úr fólki með hálsbindasölu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 18. mars 2015 14:23 MYND/EMBÆTTI SAKSÓKNARA Í SAN BERNADINO/dv
Alfreð Örn Clausen hefur áður verið sakaður um að svíkja fé af fólki. Er hann sagður hafa falsað greiðslunótur fyrir kaup á hálsbindum. Hann er nú eftirlýstur af bandarískum lögregluyfirvöldum vegna gruns um stórfelld fjársvik. Alfreð hét áður Alfreð Hermannsson. DV greindi frá því árið 1993, þegar Alfreð var um tvítugt, að hann hefði svikið fé af fjölda fólks. Í fréttinni kemur fram að hann hefði ráðið til sín sölumenn skömmu fyrir jól það árið til að selja hálsbindi.Einum tölustaf ofaukið Haft er eftir nafnlausum manni sem keypti sér hálsbindi við söluborð í Austurveri að uppsett verð hafi verið 1.995 krónur. Þegar litið hafi verið á greiðslukortayfirlitið virtist bindið þó hafa hækkað um tíu þúsund krónur í verði og kostaði 11.995 krónur. „Við höfðum nótuna í höndunum og vorum viss um að þetta væru mistök. Í bankanum kom hins vegar í ljós að tölunni 1 hafði verið bætt framan við upphæðina á sölunótunni,“ sagði maðurinn í samtali við DV.Sjá einnig: Fengu greitt fyrir að lofa upp í erminaStórfellt svikamál og það fyrsta sinnar tegundar Í fréttinni segir að um hafi verið að ræða stórfellt svikamál hjá greiðslukortafyrirtækjunum Visa og Kreditkrotum þar sem söluaðili hafi breytt upphæðum á fjölda greiðslukortanóta og þannig svikið þannig út ríflega eina milljón króna. Viðskipti Alfreðs hafi öll átt sér stað með svokölluðum strauvélum og að honum hafi tekist að selja þriðja aðila flest allar fölsuðu sölunóturnar. Sá hafi svo komið þeim til greiðslukortafyrirtækjanna. Málið var það fyrsta sinnar tegundar.Sölumaðurinn sagði Alfreð hafa beðið starfsmennina um að aðstoða sig við að skipta íslenskum krónum í Bandaríkjadali.Í frétt DV hinn 7. janúar 1993 er haft eftir sölumanni á vegum Alfreðs að Alfreð hefði lagt ríka áherslu á að viðskiptavinir þeirra greiddu fyrir hálsbindin með greiðslukortum. Þá ættu þeir, í stað þess að skrifa „bindi“ á sölunóturnar, að skrifa „vörur“. Sölumennirnir hefðu svo áttað sig á hlutunum eftir fréttaflutning um málið.Með peninginn í ferðatösku Þá sagði sölumaðurinn að í lok árs 1992 að Alfreð hefði virst liggja mikið á og beðið sölumenn sína um að hjálpa sér við að skipta íslenskum krónum í dollara. Neituðu þeir þó þeirri ósk, en viðmælandi DV ók Alfreð út á flugvöll sem sagði Alfreð hafa verið með hálfa aðra milljón króna í íslenskum krónum og Bandaríkjadölum í ferðatösku. Sölulaunin voru ekki af verri endanum en fyrir hvert hálsbindi fengu sölumennirnir allt að helming í sölulaun. Ekki liggur fyrir hver niðurstaða málsins var en viðskiptavinir greiðslukortafyrirtækjanna fengu upphæðirnar endurgreiddar.
Tengdar fréttir Lögregla í Kalíforníu leitar Íslendings í tengslum við milljarðasvindl Hinn 41 árs Alfreð Örn Clausen á að hafa svikið pening frá viðskiptavinum lögfræðistofu hans. 17. mars 2015 18:23 Fengu greitt fyrir að lofa upp í ermina Alfreð Örn, ásamt tveimur Bandaríkjamönnum, buðu upp á aðstoð við endurfjármögnun lána – þjónustan átti að vinnast af lögmönnum en var sett í hendur ólöglærðra sem fóru fram á fyrirframgreiðslu og hirtu mánaðarlegar greiðslur. 18. mars 2015 07:00 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira
Lögregla í Kalíforníu leitar Íslendings í tengslum við milljarðasvindl Hinn 41 árs Alfreð Örn Clausen á að hafa svikið pening frá viðskiptavinum lögfræðistofu hans. 17. mars 2015 18:23
Fengu greitt fyrir að lofa upp í ermina Alfreð Örn, ásamt tveimur Bandaríkjamönnum, buðu upp á aðstoð við endurfjármögnun lána – þjónustan átti að vinnast af lögmönnum en var sett í hendur ólöglærðra sem fóru fram á fyrirframgreiðslu og hirtu mánaðarlegar greiðslur. 18. mars 2015 07:00