Leikmaður úr 1996-liði Chicago Bulls lést í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2015 11:45 Jack Haley í leik með Chicago Bulls. Vísir/Getty
Chicago Bulls 1995-96 setti met með því að vinna 72 af 82 leikjum sínum í deildarkeppninni en í gær kvaddi einn leikmanna liðsins þennan heim. Jack Haley, sem lék alls í níu tímabil í NBA-deildinni, lést í gær en hann glímdi við hjartasjúkdóm. Haley var 51 árs. Jack Haley spilaði með Chicago Bulls, New Jersey Nets, Los Angeles Lakers of San Antonio Spurs og sínum NBA-ferli og var með 3,5 stig og 2,7 stoðsendingar að meðaltali. Haley var 208 sentímetra miðherji sem var ekki með Bulls-liðinu í úrslitakeppninni 1996 en kom við sögu í lokaleik deildarkeppninnar þar sem hann var með fimm stig á sjö mínútum. „Chicago Bulls fjölskyldan hefur fengið þær sorglegu fréttir að fyrrum leikmaður liðsins, Jack Haley, hafi látist. Hann var mikilvægur meðlimur 1995-96 meistaraliðsins, áhugasamur og hvetjandi liðsfélagi sem kom alltaf með orku og eldmóð inn í félagið. Við sendum fjölskyldu Jack okkar samúðarkveðjur," sagði í yfirlýsingu frá Chicago Bulls. Jack Haley vildi sjálfur ekki taka undir það að hann hafi verið barnapía Dennis Rodman í þessu 1996-liði en Rodman birti mynd af Haley að kyssa hann á kinnina á twitter-síðu sinni. Haley var ekki aðeins þekktur fyrir að spila í NBA. Hann lék í körfuboltamyndunum „Eddie" og „Rebound" og hann lék einnig í tónlistarmyndbandinu "Love in an Elevator" með Aerosmith.
NBA Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Sjá meira