Sir Alex fundaði með Cristiano Ronaldo Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. mars 2015 11:00 Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United. Vísir/Getty
Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United, fer fyrir herferðinni að fá Cristiano Ronaldo aftur "heim" til Manchester United ef marka má heimildir spænska blaðsins AS. AS segir frá því í dag að Sir Alex Ferguson hafi mætt til Madrid í síðustu viku til að reyna að sannfæra Cristiano Ronaldo um að koma aftur til Manchester United i sumar. Fundurinn átti hafa farið fram eftir leik Real Madrid og Schalke 04 í Meistaradeildinni þar sem Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk en varð samt að sætta sig við 4-3 tap. Real Madrid komst þó naumlega áfram í átta liða úrslitin. „Samkvæmt okkar heimildum hjá Manchester United þá vill félagið kaupa aftur Cristiano Ronaldo eftir tímabilið. Ferguson kom til Madrid til að reyna að sannfæra portúgölsku stjörnuna um að snúa aftur," segir í frétt AS. Sir Alex Ferguson var knattspyrnustjóri liðsins allan tíma Cristiano Ronaldo hjá félaginu en Sir Alex vinnur nú sem sendiherra félagsins. Ronaldo hefur alltaf talað einstaklega vel um gamla stjórann sinn. Cristiano Ronaldo fór frá Manchester United árið 2009 og hefur blómstrað hjá Real Madrid. Hann hefur verið kosinn besti knattspyrnumaður heims undanfarin tvö ár. Orðrómurinn um mögulega endurkomu hans á Old Trafford hefur aldrei verið háværari en nú. Samband Cristiano Ronaldo og forsetans Florentino Perez er stirt og það þykir auk líkurnar á að Ronaldo yfirgefi spænska félagið.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira