Tveir alvarlega slasaðir eftir bílslys við Snæfellsbæ Bjarki Ármannsson skrifar 28. maí 2015 10:24 Þyrlan flutti þrjá á Landspítalann, þar af tvo alvarlega slasaða. Vísir/Stefán
Tveir erlendir ferðamenn eru alvarlega slasaðir eftir bílslys á þjóðveginum við Hellissand nú á tíunda tímanum. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið að sækja hina slösuðu.Skessuhorn greinir frá þessu. Jeppi ferðamannanna er sagður hafa oltið út af veginum og farið nokkrar veltur áður en hann staðnæmdist utan vegar. Beita þurfti klippum á bílflakið til að ná farþegunum út. Samkvæmt lögreglu í Snæfellsbæ voru fjórir farþegar til viðbótar í bílnum. Þeir eru ekki taldir jafn slasaðir.Uppfært 11.00: Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið frá slysstað á Landspítalann og er von á hennni þar um klukkan 11.15. Að sögn lögreglunnar í Snæfellsbæ voru alls þrír farþega bílsins um borð í þyrlunni, þar af þeir tveir sem sagðir eru alvarlega slasaðir. Lögregla vill ekki gefa meira upp um ástand þeirra. Þeir þrír sem ekki voru fluttir með þyrlunni hafa verið fluttir á Heilsugæslustöðina í Ólafsvík. Lögregla segir að þaðan verði þeir sennilega fluttir til frekari skoðunar á Landspítalanum síðar.Uppfært 11.45: Þyrlan er lent hjá Landspítalanum. Tveir voru fluttir úr henni á sjúkrabörum en sá þriðji virtist geta gengið sjálfur.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira