Harden og félagar enn með | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. maí 2015 09:10 Harden leggur boltann í körfuna. vísir/getty
Houston Rockets hélt sér á lífi í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar í NBA með 13 stiga sigri, 128-115, á Golden State Warriors í fjórða leik liðanna í nótt. Leikmenn Houston komu ákveðnir til leiks og skoruðu hvorki fleiri né færri en 45 stig í 1. leikhluta en staðan að honum loknum var 45-22, Houston í vil. Houston-liðar voru sjóðheitir fyrir utan þriggja stiga línuna í leiknum og hittu úr 53,1% skota sinna þaðan. Alls voru skoraðar 37 þriggja stiga körfur í leiknum sem er met í úrslitakeppninni. Golden State komst aldrei yfir í leiknum en náði að minnka muninn í átta stig þegar tvær mínútur voru eftir. En James Harden slökkti vonarneista Stríðsmannanna með þriggja stiga körfu. Harden átti magnaðan leik í nótt og skoraði 45 stig sem er persónulegt met hjá honum í úrslitakeppninni. Harden tók einnig níu fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Josh Smith gerði 20 stig og Trevor Ariza 17. Þá skilaði Dwight Howard 14 stigum og 12 fráköstum. Klay THompson var stigahæstur í liði Golden State með 24 stig. Stephen Curry gerði 23 og Draymond Green skoraði 21 stig og tók 15 fráköst. Staðan í einvígi liðanna er 3-1, Golden State í vil, en þau mætast í fimmta sinn aðfaranótt fimmtudags.
NBA Mest lesið Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum Íslenski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Íslenski boltinn Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira