Lífið

Dickinson ætlar að falla frá stefnunni ef Cosby biðst afsökunar

Birgir Olgeirsson skrifar
Janice Dickinson og Bill Cosby.
Janice Dickinson og Bill Cosby.

Verjandi ofurfyrirsætunnar Janice Dickinson segir hana ætla að falla frá stefnu gegn grínistanum Bill Cosby ef hann biðst afsökunar. Verjandi Dickinson er Lisa Bloom en hún sagði þetta við bandaríska fréttavefinn The Huffington Post.

Bloom sagði að þau dómsskjöl sem uppljóstruð sem innihalda vitnisburð Cosby þar sem hann viðurkennir að hafa byrlað konum lyfjum sem hann vildi hafa samræði við, væri ekki næg sönnun fyrir Dickinson.

„Hún vill að réttlætinu verði fullnægt. Það gerist ekki fyrr hann viðurkennir verknaðinn og biður hana afsökunar, það er allt sem hún vill. Ef hann gerir það þá fellur hún frá stefnunni,“ sagði Bloom.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.