Landsliðsþjálfari Ítalíu mögulega ákærður Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. júlí 2015 21:30 Antonio Conte er í dag landsliðsþjálfari Ítalíu. Vísir/Getty
Svo gæti farið að Antonio Conte, landsliðsþjálfari Ítalíu, verður kærður fyrir þátt sinn í meintri hagræðingu úrslita leikja þar í landi árið 2011. Conte var þá knattspyrnustjóri Siena og hefur þegar tekið út refsingu knattspyrnuyfirvalda á Ítalíu fyrir að tilkynna ekki hagræðingu úrslita tveggja leikja tímabilið 2010-11. Hann neitaði þó ávallt sök. Nú gæti mál hans endað fyrir almennum dómstólum en saksóknari hefur farið fram á að Conte verði ákærður fyrir sinn þátt. Næsta skref er að fara með málið fyrir dómara sem tekur ákvörðun um hvort að ákæra verði gefin út. Eftir tímabilið tók Conte við Juventus og gerði félagið að Ítalíumeistara þrjú ár í röð. Hann var svo ráðinn landsliðsþjálfari Ítalíu í fyrra. Rannsóknin náði yfir fjölda leikja í B- og C-deildum Ítalíu tímabilið 2010-11 sem og ítölsku bikarkeppninni. Conte var dæmdur í tíu mánaða bann árið 2012 en það var síðar stytt í fjóra mánuði eftir að hann áfrýjaði. Meira en 50 leikmönnum var refsað vegna málsins og margir dæmdir í allt að fimm ára keppnisbann. Þar að auki voru stig dregin af nokkrum félögum, þeirra á meðal Atalanta og Siena.
Ítalski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Sjá meira