Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, hafa báðir áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í markaðsmisnotkunarmálinu svokallaða til Hæstaréttar. Þetta herma heimildir Vísis en dómur var kveðinn upp fyrir rúmum fjórum vikum.
Hreiðari Má var ekki gerð frekari refsing umfram dóminn sem hann hlaut í Al Thani-málinu en hann var þá dæmdur í fangelsi í fimm og hálft ár.
Samanlögð refsing Sigurðar Einarssonar fyrir hans aðild að markaðsmisnotkunarmálinu og Al Thani-málinu er fangelsi í fimm ár, fjögur ár fyrir Al Thani-viðskiptin og svo bættist eitt ár við vegna markaðsmisnotkunarmálsins.
Samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara áfrýjuðu þrír sakborningar til Hæstaréttar. Vísir hefur ekki fengið staðfest hver þriðji maðurinn er en í frétt Viðskiptablaðsins kemur fram að það sé Bjarki Diego, framkvæmdastjóri útlána hjá bankanum.
Eftir því sem Vísir kemst næst mun ríkissaksóknari hafa áfrýjað málinu hvað varðar hina sakborningana sex í málinu, en embættið hefur ekki viljað staðfesta þetta. Heimildir Viðskiptablaðsins eru þó á sama veg.
Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, var dæmdur í fangelsi í fjögur og hálft ár fyrir markaðsmisnotkunarmálið. Þá var Bjarki Diego dæmdur í fangelsi í tvö og hálft ár.
Þá hlaut Einar Pálmi Sigmundsson, sem var forstöðumaður eigin viðskipta Kaupþings, tveggja ára skilorðsbundinn dóm. Pétur Kristinn Guðmarsson og Birnir Sær Björnsson, starfsmenn eigin viðskipta, hlutu 18 mánaða skilorðsbundinn dóm.
Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, og Björk Þórarinsdóttir, sem sat í lánanefnd bankans, voru bæði sýknuð í málinu.
Markaðsmisnotkunarmál Kaupþings fer fyrir Hæstarétt

Tengdar fréttir

Hver var dæmdur fyrir hvað? Sakfellt fyrir markaðsmisnotkun en enginn dæmdur fyrir milljarða lán til Mata
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings er tæpar 100 blaðsíður. Vísir fór yfir dóminn og bar hann saman við ákæruna í málinu sem var allítarleg.

Hreiðar, Sigurður og Ingólfur dæmdir
Dómur féll í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings í dag.

„Stórfelld markaðsmisnotkun“ stunduð í deild eigin viðskipta Kaupþings
"Ótrúverðugt“ að Hreiðar Már og Sigurður hafi ekki vitað af því hvernig deildin vann.

Fer fram á þunga dóma yfir Kaupþingstoppum: Alvarlegri brot en í Al Thani-málinu
Björn Þorvaldsson, saksóknari, lauk fyrri málflutningsræðu sinni í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings í dag.