Viðskipti innlent

Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heim­sendingu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, segir minni áfengisneyslu samræmast markmiðum ríkisins. Óljóst sé þó hversu mikið minni neysla skýri sölusamdrátt Vínbúðanna.
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, segir minni áfengisneyslu samræmast markmiðum ríkisins. Óljóst sé þó hversu mikið minni neysla skýri sölusamdrátt Vínbúðanna. Vísir/Arnór Trausti

Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR segir til skoðunar að hefja heimsendingu á vörum Vínbúðarinnar. Það væri aðallega til að auka þjónustu og aðgengi að vöruúrvali sem er meira í netverslun þeirra en í verslunum þeirra.

Sala áfengis í Vínbúðunum dróst saman um 7,5 prósent í lítrum talið fyrstu níu mánuði ársins, að sögn forstjóra ÁTVR. Þorgerður sagði á mánudag minni áfengisneyslu samræmast markmiðum ríkisins. Óljóst sé þó hversu mikið minni neysla skýri sölusamdrátt Vínbúðanna. 

Sama dag var tilkynnt um hagræðingu hjá ÁTVR. Sviðum yrði fækkað um eitt og staða eins framkvæmdastjóra lögð niður, auk þess sem stöðugildum á skrifstofu og í dreifingarmiðstöð var fækkað um tæplega sex, í hagræðingaraðgerðum. Með þeim er áætlað að spara um 150 milljónir króna á ári.

Rætt var við Þorgerði í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær um þessi mál en einnig um heimsendingu á vörum þeirra og Ölgerðina.

Áfengisneysla dregist saman um allan heim

Þorgerður segir erfitt að sjá nákvæmlega hver skýringin á samdrætti í sölu sé. Þau sjái það í nágrannalöndunum að neysla áfengis sé að dragast saman og tölur Hagstofunnar bendi til þess að það sé líka þannig á Íslandi. Í dag séu fleiri aðilar á markaði en áður og það gæti þó líka skýrt samdrátt hjá þeim því salan fari annað.

Áfengisneysla hafi dregist saman um allan heim en það sé þó líklega ekki um 7,5 prósent.

Hvað varðar hagræðingu segir Þorgerður að það þurfi að bregðast við breytingum í rekstrarumhverfi og eitt af þeirra hlutverkum sé að vera með ábyrgan rekstur. Þá sé hagræðing óhjákvæmileg.

Krafa um hagræðingu

Hún segir að frá því hún tók við fyrir ári hafi verið unnið að nýrri stefnu og rekstrarumhverfið skoðað. Þá sé einnig krafa frá stjórnvöldum um að hagræða í rekstri.

„Það er ljóst að við þurfum að draga saman í rekstrarkostnaði,“ segir hún. Þorgerður segir alltaf erfitt að fara í hagræðingaraðgerðir sem feli í sér uppsagnir og það hafi gott fólk kvatt þau í gær. Það sé alltaf erfitt að kveðja gott fólk.

Þorgerður segir markmið ríkisins í lýðheilsumálum að áfengisneysla sé lítil og ábyrg og hlutverk ÁTVR sé að stuðla að því að skaðsemi neyslunnar sé sem minnst og verja ungt fólk með því að stýra neyslunni. Þegar neysla dragist saman sé það í takt við markmið ríkisins.

Þorgerður segir ekki hafa verið teknar ákvarðanir um fækkun útibúa eða breytingu á afgreiðslutíma eða þjónustu. Hún segir að dregið hafi úr aukavinnu í tímavinnu til að reyna að koma í veg fyrir fækkun fastra starfsmanna.

Gætu hafið heimsendingar

„Við erum með netverslun en höfum ekki verið með heimsendingar hingað til,“ segir hún og að það sé gott aðgengi að vöruvali á netinu og það sé meira en í verslunum. Birgjar geti skráð vörur sem eru ekki í hillum verslana og viðskiptavinir hafi þannig meira úrval og geti pantað í hvaða verslun sem er.

Hún segir það til skoðunar að fara í heimsendingu og þá fyrst og fremst „til að bæta þjónustuna þannig að það verði aðgengi að meira vöruúrvali“.

Þorgerður segir áætlað að netverslanir séu með um tíu prósenta markaðshlutdeild en það skorti gögn til að meta það með heildstæðum hætti.

Vara sem nýtur meiri eftirspurnar fái meira hillupláss

Þorgerður ræddi að lokum stöðu Ölgerðarinnar og hillupláss í verslunum ÁTVR en markaðsráðandi staða þeirra var nýlega til umfjöllunar í Kveik. Þorgerður segir smábrugghúsum ekki markvisst haldið frá hilluplássinu . Regluverkið sé bundið í lög, reglur og reglugerðir og það ríki jafnræði en það þýði ekki endilega að allir fái allt jafnt, heldur jöfn tækifæri.

Þorgerður segir að vara sem nýtur meiri eftirspurnar fái meira pláss óháð því frá hverjum hún kemur. Ölgerðin selji um 50 prósent seldra lítra hjá ÁTVR í bjór en þeir séu ekki með 50 prósent af bjórplássinu.

Hún segir það ekki hlutverk ÁTVR að fylgjast með markaðshlutdeild fyrirtækja, Samkeppniseftirlitið geri það, og að þau verði að fylgja opinberum reglum um hverjir fá hillupláss, hvernig og hver framsetningin er. Vara sem er seld mikið á hverjum degi fái meira pláss. Þau séu verslun og þegar komi að birgðahaldi og vörustýringu þurfi þau að sinna því út frá viðskiptalegum sjónarmiðum þó svo að Vínbúðin sé ekki hefðbundin verslun.

Þorgerður útskýrði svo ferlið við það að koma nýrri vöru í sölu. Viðtalið er hægt að hlusta á að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×