Panamera Volkswagen árið 1965 Finnur Thorlacius skrifar 8. september 2015 10:30 Volkswagen EA128 var gæðagripur smíðaður fyrir kröfuharða kaupendur.
Árið 1965 smíðaði Volkswagen bíl sem í flestu uppfyllti það sem Porsche Panamera lúxusfjölskyldubíllinn gerir í dag. Þessi bíll fór aldrei í framleiðslu en hann er nú á Volkswagen bílasafninu í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Wolfsburg í Þýskalandi. Þessi tilraunabíll var kallaður EA 128 og hann var sannarlega óvenjulegur fyrir Volkswagen bíl að vera. Bíllinn var hlaðinn lúxus þess tíma, var með sömu 6 strokka vél og notuð var í Porsche 911 á þessum tíma, afturí bílnum eins og í Porsche og fjöðrunarkerfi bílsins var einnig það sama og undir Porsche 911. Ekki dónalegt það. Hann var mjög rúmgóður og stór bíll eins og Porsche Panamera en tók reyndar fleiri farþega, eða 6 í stað 4. Frammí var leðurklæddur bekkur sem tók 3 og samskonar afturí. Margir hafa reyndar sagt að tilraunabíllinn 989 frá Porsche hafi verið forveri Panamera, en þessi bíll kom fram miklu fyrr, eða 1965, en 989 var smíðaður þremur áratugum síðar. Porsche 989 var eiginlega lengdur 911 bíll og með fjórum hurðum eins og Porsche Panamera nú. Ekki er víst að sami markaður hafi verið fyrir EA 128 bíl Volkswagen og er í dag og því var ef til vill ekki tekin ákvörðun um að smíða hann í raðframleiðslu. Hann var þó sannarlega smíðaður fyrir samskonar kaupendur, fólk sem átti mikið fé og vildi mikinn lúxus og gott afl.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent