Nissan Leaf með langdrægari rafhlöðu Finnur Thorlacius skrifar 10. september 2015 13:45 Nissan Leaf.
Nissan hefur tilkynnt að frá og með janúar á næsta ári verði rafmagnsbíllinn Nissan Leaf einnig í boði með nýrri 30kWh rafhlöðu í dýrustu útgáfu Nissan Leaf. Samkvæmt uppgefnum tölum framleiðanda er drægni hennar 245 km á einni hleðslu miðað við bestu aðstæður. Það er um 23% aukning frá núverandi 24kWh rafhlöðu sem verður áfram í boði í Leaf. Reynslan sýnir að kalt veðurfar minnkar drægni rafhlaða og er sú raunin á norðlægum slóðum þar sem Leaf er í boði, m.a. í Noregi og á Íslandi. Ólíklegt er því að nýja rafhlaðan skili 245 km drægni hér á landi þegar hún kemur á markað. Þó ber að hafa í huga að nýja 30kWh rafhlaðan var þróuð og hönnuð á grundvelli nýrrar og enn fullkomnari tækni þar sem notuð voru ný efni sem geymt geta mun meiri orku en núverandi rafhlaða. Ekki er því ljóst á þessari stundu hver drægni nýju rafhlöðunnar verður á Íslandi. Með fyrirvara má þó reikna með að 30kWh rafhlaðan muni draga að minnsta kosti á bilinu 150 til 185 km sem svarar um það bil til vegalengdarinnar frá Reykjavík til Víkur í Mýrdal eða rúmlega vegalendarinnar til Staðarskála í Hrútafirði. Nissan er enn sem komið er eini bílaframleiðandi heims sem býður svo langdræga rafhlöðu í fjöldaframleiddum bíl í þessum stærðarflokki á heimsmarkaði. Framleiðandinn heldur því enn forskoti sínu á þessu sviði enda hefur enginn fjöldaframleiddur rafbíll náð viðlíka útbreiðslu og Leaf. Jafnframt er ljóst að með tilkomu nýju rafhlöðunnar verður Nissan Leaf enn ákjósanlegri valkostur fyrir bíleigendur sem nú aka bíl með bensín- eða dísilvél að sögn Paul Willcox, forstjóra Nissan í Evrópu.Sama notendavæna umhverfið Nýja 30kWh rafhlaðan er nákvæmlega jafnstór og núverandi 24kWh rafhlaða í Leaf en um 21 kg þyngri. Hleðslumöguleikar verða óbreyttir, hvort sem er við heimahús eða á hraðhleðslustöðvum, þar sem hægt verður að hlaða rafhlöðuna upp að 80% á 30 mínútum eins og núverandi 24kWh rafhlöðu. Nissan Leaf er framleiddur í verksmiðju Nissan í Sunderland í Bretlandi og hefst sala á stærri rafhlöðunni á Evrópumörkuðum í janúar. Nissan mun á næstu vikum tilkynna verð og útbúnað á einstökum mörkuðum.
Mest lesið Vaktin: Björgunarsveitir á fullu um land allt Innlent Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Innlent Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Innlent Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Innlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Neita að afhenda dóma lögreglumanna Innlent Stúlkan er fundin Innlent Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent