Bíó og sjónvarp

Þættirnir Ófærð seldir á Bandaríkjamarkað fyrir 153 milljónir

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þættirnir Ófærð sem Baltasar vann að hafa nú verið seldir til sýninga í Bandaríkjunum.
Þættirnir Ófærð sem Baltasar vann að hafa nú verið seldir til sýninga í Bandaríkjunum. Vísir/Getty
„Við lentum í miklum ógöngum með bankakerfið,“ sagði Baltasar Kormákur um fjármögnun sjónvarpsþáttanna Ófærð sem hann vann að. Þættirnir kostuðu milljarð í framleiðslu en hafa nú verið seldir á Bandaríkjamarkað fyrir 153 milljónir íslenskra króna. Þetta kom fram á fundinum Er íslensk kvikmynd góð fjárfesting? sem nú fer fram í Norræna húsinu.

„Vandamálið var að þegar svona stórir þættir eru gerðir vantar sjóðstreymi. Allir samningar um sýningarrétti koma eftir að búið er að gera þættina. Við töluðum því við alla bankana en þeir treystu því ekki að við myndum skila efninu,“ sagði Baltasar.

Fylgjast má með fundinum auk þess sem hægt er að horfa á hann í heild sinni hér fyrir neðan.

Heiðar Guðjónsson, Agnes Johansen, Baltasar Kormákur, Gísli Gíslason og Grímar Jónsson eru gestir fundarins en fundarstjóri er  Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.


Tengdar fréttir

Ófærð sýnd á RIFF

Lokamynd Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, í ár verða fyrstu tveir þættirnir af Ófærð






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.