Keflavíkurkonur með yfir 80 prósent mætingu í úrslitaleikina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2015 14:15 Sandra Lind Þrastardóttir var með 14 stig og 11 fráköst fyrir Keflavík í gær. Vísir/Vilhelm
Kvennalið Keflavíkur og Hauka tryggðu sér í gær sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna í körfubolta og mætast í úrslitaleiknum í Iðu á Selfossi á morgun. Keflavík vann 80-76 sigur í spennuleik á móti Val en Haukakonur áttu ekki í miklum vandræðum í 96-49 sigri á Grindavík. Keflavíkurkonur byrjuðu leikinn vel og enduðu hann vel. Keflavík komst í 28-13 í upphafi leiks og vann síðan síðustu níu mínúturnar 21-8 eftir að Valskonur höfðu náð níu stiga forskoti í upphafi fjórða leikhlutans. Þetta verður þrettándi úrslitaleikur Keflavíkurliðsins í sextán ára sögu Fyrirtækjabikars kvenna og hafa þær nú spilað tvöfalt fleiri úrslitaleiki en næstu lið sem eru Haukar og KR. Margrét Sturlaugsdóttir er þar með búin að skila Keflavíkurliðinu í fyrsta úrslitaleikinn sem var í boði á hennar fyrsta tímabili með liðið. Margrét teflir fram mjög ungu liði sem sést vel á því að aðeins tveir leikmenn Keflavíkurliðsins í gær eru fæddar fyrir 1995 eða bandaríski leikmaðurinn Melissa Zorning og svo Bryndís Guðmundsdóttir. Fimm af tólf leikmönnum Keflavíkur í gær eru fæddar 1998 eða síðar. Eins og áður sagði þá þekkja Keflavíkurkonur það vel að ná langt í þessari árlegu keppni en þær hafa spilað 81 prósent úrslitaleikja sögunnar. Keflavíkurkonur spiluðu sex fyrstu úrslitaleikina í sögu Fyrirtækjabikars kvenna og hafa aðeins misst af þremur úrslitaleikjum eða úrslitaleikjunum árin 2006, 2009 og 2013. Keflavíkurliðið vann Fyrirtækjabikarinn í sjöunda sinn fyrir ári síðan en Haukakonur hafa unnið hann næst oftast eða þrisvar sinnum. Þessi tvö lið eru nú að mætast í fjórða sinn í úrslitaleik Fyrirtækjabikars kvenna. Haukar unnu 2005 og 2011 en Keflavíkurliðið vann leik liðanna 2007.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjá meira