Cech sá fyrsti sem heldur hreinu á móti Bayern á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2015 22:07 Petr Cech. Vísir/Getty
Petr Cech, markvörður Arsenal, sýndi hversu öflugur hann er í kvöld þegar Arsnenal vann 2-0 sigur á Bayern München og fékk um leið sín fyrstu stig í Meistaradeildinni á tímabilinu. Petr Cech varði nokkrum sinnum mjög vel frá leikmönnum Bayern München og var mjög öruggur í öllum sínum aðgerðum. Bayern München var fyrir leikinn búið að skora í öllum 13 leikjum sínum á tímabilinu, 29 mörk í 9 leikjum í þýsku deildinni, 3 mörk í 1 leik í þýska bikarnum, 1 mark í 1 leik í Meistarakeppninni og 8 mörk í 2 leikjum í Meistaradeildinni. Petr Cech var því fyrsti markvörðurinn sem nær að halda hreinu á móti liði Bayern München á leiktíðinni. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var ánægður með hann í leikslok. „Petr Cech var lykilmaður í þessum sigri. Hann var svo klókur og það var svo mikill klassi yfir því sem hann gerði. það voru tveir heimsklassa markverðir að spila í kvöld," sagði Arsene Wenger en í marki Bayern München var þýski landsliðsmarkvörðurinn Manuel Neuer. Petr Cech hefur nú spilað 11 leiki með Arsenal á þessu fyrsta tímabili sínu með liðinu og hann hefur haldið hreinu í sjö leikjanna og aðeins fengið á sig samtals sjö mörk.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Þýski boltinn Tengdar fréttir Arsenal vann 2-0 sigur á Bayern og fékk sín fyrstu stig | Sjáið mörkin Arsenal var gríðarlega mikilvægan 2-0 sigur á Bayern München á Emirates-leikvanginum í Meistaradeildinni í kvöld en þetta voru fyrstu stig Arsenal í Meistaradeildinni á leiktíðinni eftir töp í tveimur fyrstu leikjum sínum. 20. október 2015 20:30 Lewandowski: Þetta er síðasti séns fyrir Arsenal Arsenal, sem tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í Meistaradeildinni, mætir Bayern München á heimavelli í kvöld. 20. október 2015 17:00 Mest lesið „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Handbolti Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Handbolti Dagný gleymd eða afskrifuð?: Hefur ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum Fótbolti Guardiola allur útklóraður eftir leik Fótbolti Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Enski boltinn „Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“ Fótbolti Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Laumaði hauskúpu afa síns inn á úrslitaleikinn Fótbolti Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Enski boltinn Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Körfubolti Fleiri fréttir Elfar Árni heim í Völsung „Gefur enga mynd af því sem við erum að fara að ganga í gegnum“ Amma Bellinghams fór ekki út úr húsi á meðan EM stóð Svarar Gabriel eftir að hann stal fagninu hans Guardiola allur útklóraður eftir leik Coote gaf gult spjald eins og hann talaði um fyrir leik Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Dagný gleymd eða afskrifuð?: Hefur ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum „Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“ Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Laumaði hauskúpu afa síns inn á úrslitaleikinn „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Sjá meira
Arsenal vann 2-0 sigur á Bayern og fékk sín fyrstu stig | Sjáið mörkin Arsenal var gríðarlega mikilvægan 2-0 sigur á Bayern München á Emirates-leikvanginum í Meistaradeildinni í kvöld en þetta voru fyrstu stig Arsenal í Meistaradeildinni á leiktíðinni eftir töp í tveimur fyrstu leikjum sínum. 20. október 2015 20:30
Lewandowski: Þetta er síðasti séns fyrir Arsenal Arsenal, sem tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í Meistaradeildinni, mætir Bayern München á heimavelli í kvöld. 20. október 2015 17:00