Messi verður kóngurinn af El Clásico skori hann gegn Real um helgina Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. nóvember 2015 17:45 Lionel Messi er í kapphlaupi við tímann vegna meiðslanna. vísir/getty
El Clásico, viðureign Real Madrid og Barcelona, einn af stærstu leikjum hvers tímabils í Evrópufótboltanum, fer fram á laugardaginn og verður vitaskuld í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Lionel Messi getur bætt enn eitt metið á sínum ferli skori hann í leiknum á laugardaginn, en með marki verður hann einn markahæstur í El Clásico-leikjum í spænsku 1. deildinni. Messi er nú jafn Real-goðsögninni Alfredi Di Stefáno með 14 mörk í deildarleikjum gegn Barcelona og fer einn á toppinn með marki á laugardaginn. Hann er nú þegar markahæstur í sögu El Clásico þegar allar keppnir eru teknar með, en Messi hefur skorað 21 mark á sínum ferli gegn Real Madrid. Alfredo Di Stéfano er í öðru sæti með 18 mörk og þeir Raúl González og Cristiano Ronaldo 15 mörk hvor. Ronaldo er „aðeins“ búinn að skora sjö mörk gegn Barcelona í deildinni og er þar langt á eftir Messi. Ronaldo hefur aftur á móti skorað fimm mörk á móti Barcelona í spænska konungsbikarnum, en Messi á enn eftir að skora bikarmark á móti Real Madrid. Það stendur þó tæpt að Messi geti verið með á laugardaginn vegna meiðsla. Hann hefur ekki verið með Barcelona-liðinu síðan í september en Argentínumaðurinn sneri aftur til æfinga í vikunni og vonast til að koma við sögu á laugardaginn. Barcelona er þremur stigum á undan Real Madrid á toppnum og getur stungið af með sigri á Santiago Bernabéu á laugardaginn. Heimamenn í Real Madrid þurfa helst á sigri að halda til að missa Börsunga ekki of langt fram úr sér.
Spænski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Sjá meira