Desemberspá Siggu Kling – Bogmaður: Getur fengið hvern sem þú vilt 27. nóvember 2015 09:00
Elsku bogmaðurinn minn. Núna er tími til að láta alla drauma rætast! Þú ert með svo góðar hugmyndir sem þú munt hræra saman við bjartsýni og þá tekst þér að láta þær verða að veruleika. Þú ert svo líflegur og í góðu sambandi við þá sem skipta þig máli, þú færð góða útkomu í desember, sem er svo sannarlega besti mánuðurinn sem þú getur fengið! Þú gætir orðið fúll út í margt sem gerist og hugsað: Þetta var ekki rétt hjá Siggu Kling í stjörnuspánni að allt myndi rætast. Jú, jú, þú lendir, eða kemur þér í röð atvika sem munu breyta hjá þér vissu skipulagi svo þú þarft að nota plan-B ef þú ert með það. Þetta setur glitur af öllum litum í líf þitt og þú munt sjá að það kemur tími til að fagna. Þér finnst að þú fáir mikla blessun en mundu að af auðveldu kemur lítið sem ekkert og af erfiðum hlutum verður mikil útkoma svo þú skalt reyna mikið á þig og trúa því að þú uppskerir í samræmi við það. Janúar ætlar að verðlauna þig og þú átt það svo sannarlega skilið, duglegi og góði bogmaður! Þú þarft að bjóða heiðarleikann velkominn í partíið í desember. Ekki svíkja neinn, það kemst upp og best er að vera einlægur og svolítið gegnsær. Þér verður trúað fyrir hlutum sem þú þarft að passa upp á að hafa bara hjá þér. Þú þrífst á áskorunum en koðnar niður ef þér er stjórnað um of. Júpíter er þín pláneta og hún vill að allt þenjist svoldið út hjá þér og þá erum við ekki að tala um líkamlega! Hún mun sjá til þess að þú sigrir. Þú getur fengið hvern sem er í ástinni og ef þú ert á lausu þá er ástartímabil í gangi. Vanillulykt passar vel fyrir kvenþjóðina í bogmanninum eða að gera sína eigin lykt og blanda saman vanillu og annarri uppáhaldslykt, í ástinni veljumst við nefnilega líka saman af lykt! Taktu aukaskrefið til sigurs. Mundu að hamingjan bankar ekki bara upp á, þú þarft að vita hvað þú vilt og sækja það og desember gefur þér X-faktorinn sem þú þarft í það verkefni. Mottó verða aldrei gömul, hér vel ég tvö sterk sem þú hefur fengið áður og þau eru að sjálfsögðu enn í gildi í desember þannig að þú skalt hafa þau hugföst í mánuðinum: Ég er eins hamingjusamur og ég vil vera. Mistökin gera mig að sterkari manneskju. Knús og koss, Sigga KlingFrægir bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collecton, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur og Hemmi, hársnillingur á Módus.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Fleiri fréttir „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Sjá meira