10 bestu hjá Car and Driver Finnur Thorlacius skrifar 20. nóvember 2015 15:13 Mazda MX-5 Miata er einn hinna tíu útvöldu hjá Car and Driver.
Á hverju ári velur bílatímaritið Car and Driver þá tíu bíla sem blaðamenn þess telja bestu framleiðsluna hverju sinni. Í ár eru það þessir, í réttri stafrófsröð: BMW M235i, Cadillac CTS Vsport, Chevrolet Camaro, Ford Mustand Shelby GT350/GT350R, Honda Accord, Mazda MX-5 Miata, Mazda3, Porsche Boxter/Cayman, Tesla Model S og Volkswagen Golf GTI/R. Tilvist Honda Accord á lista Car and Driver kemur ekki á óvart þar sem sá bíll hefur oftast allra verið á lista blaðsins, eða allar götur frá árinu 1998. Né heldur kemur vera Porsche Boxter/Cayman og Volkswagen Golf á óvart, en þeir bílar hafa mýmörgu sinnum verið á listanum. Þá er BMW M235i á listanum nú, en hinn aðeins stærri BMW 3 og afsprengi hans, BMW 4 hafa vermt listann á undanförnum árum. Mazda MX-5 kemst nú á listann eftir tveggja ára fjarveru, en sá bíll var tíður gestur á honum árin þar á undan. Það er til vitnis um að Mazda geri flest rétt þessa dagana að fyrirtækið er eini bílaframleiðandinn sem nær tveimur bílgerðum sínum á listann og er ekki þar um að ræða einn af stærstu bílaframleiðendum heims, heldur fremur smáan, en svo til allir framleiðslubílar þess eru margverðlaunaðir fyrir gæði og gott verð. Þrír bílar voru mjög nálægt því að ná inná listann eftirsótta, en það eru bílgerðirnar Cadillac ATS-V, Honda Civic og Mercedes Benz C450. Hefur samkeppnin milli bíla aldrei verið eins hörð og nú og munaði mjög litlu á þessum þremur bílum og þeim sem náðu með tæpasta hætti inná listann. Porsche Boxter er á listanum ásamt bróður sínum Cayman.Jalopnik
Mest lesið Vaktin: Vegum lokað og varað við ferðalögum á Suðurlandi Innlent Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Veður Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Innlent Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Innlent Státum af klárasta barþjóni Evrópu Innlent Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Innlent