Aníta gæti verið nálægt verðlaunapallinum í Prag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2015 07:45 Aníta Hinriksdóttir ætlar sér stóra hluti á EM. vísir/Valli
Aníta Hinriksdóttir er nýorðin nítján ára en hún er þrátt fyrir ungan aldur mætt á sitt fjórða stórmót fullorðinna. Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu Hinriksdóttur, er með henni úti á EM í Prag og honum lýst vel á stöðuna á vonarstjörnu Íslands á Evrópumótinu í ár. „Hún er bara tilbúin í slaginn. Við vorum niðri í höll í morgun og það eru mættar hingað mjög margar sem við þekkjum og hún hefur keppt við áður. Þetta verður skemmtilegt barátta. Riðlakeppnin byrjar á morgun (í dag) og það er ekkert annað en hlaupa þannig hlaup að hún komist örugglega áfram. Undirbúningurinn hefur gengið vel og hún á að vera í góðu standi til þess,“ segir Gunnar Páll. Aníta keppti líka EM innanhúss fyrir tveimur árum þar sem hún varð í 11. sæti. Hún varð einnig í 11. sæti á HM innanhúss 2014.Að standast pressuna „Hún er að fá meiri reynslu í þessu og verður því að standa undir þeirri pressu núna að vera ein af þeim sem á alla möguleika til þess að komast örugglega áfram,“ segir Gunnar Páll. Aníta keppir í undanrásum í dag og þar sem hún reynir að tryggja sér sæti í undanúrslitunum sem fara síðan fram á morgun. Úrslitahlaupið er draumurinn en það fer fram á sunnudaginn. Aníta er ein af fjórum íslenskum keppendum sem hefja keppni í dag og Gunnar Páll er á því að það hafi góð áhrif á Anítu að íslenski hópurinn á mótinu sé svona stór. „Það er mjög skemmtilegt. Það er samstaða í hópnum og þetta dreifir álaginu og gerir spennustigið aðeins lægra. Það er allt annað að vera með hóp með sér, “ segir Gunnar. Gunnar Páll segir að Aníta þurfi að gera betur en á mótinu í Birmingham á dögunum. „Það gekk ekki alveg nógu vel á mótinu í Birmingham fyrir tveimur vikum en ég held að það hafi verið góð reynsla í undirbúningnum. Þar var hún í fimmta sæti en við hefðum viljað vera í öðru til þriðja sæti þar,“ segir Gunnar Páll og nefnir til nokkrar stelpur sem voru þar á undan Anítu. Besti tími Anítu á árinu er Íslandsmet hennar frá því á Stórmóti ÍR í janúar (2:01,77 mínútur).grafík/fréttablaðiðEin sem féll er komin aftur „Hún þarf að byrja á því að tryggja sig inn í undanúrslitin og þá er allt opið,“ segir Gunnar Páll en Aníta er með þriðja besta tíma ársins af þeim sem eru skráðar til leiks. „Það eru þarna þrjár til alls líklegar af þeim sem eru ekki búnar að hlaupa hraðar en Aníta núna og ein af þeim er hin úkraínska Lupu sem hefur alltaf verið mjög sterk. Hún féll á lyfjaprófi en er komin inn aftur,“ segir Gunnar Páll sem sér fram á jafna baráttu. „Það eru sex til átta sem eru mjög jafnar. Jenny Meadows er með áberandi langbesta tímann og það eru síðan tvær til þrjár sem eru með meiri reynslu en Aníta en þær eru ekki endilega sterkari. Svo eru aðrar tvær til þrjár sem eru með aðeins lakari tíma en Aníta en verða mjög skeinuhættar. Það eru því fimm til sex fyrir utan Jennu Meadows sem ættu samkvæmt pappírnum að vera að berjast um þetta,“ segir Gunnar Páll en hverjar eru væntingar hans? „Aníta gæti verið nálægt verðlaunapalli ef allt gengur upp og hún kemst í úrslitin. Við tökum samt bara eitt skref í einu og fyrst á dagskrá er að komast í undanúrslitin,“ sagði Gunnar Páll að lokum.
Frjálsar íþróttir Tengdar fréttir Hafdís: Nota þessi þrjú stökk eins vel og ég get Hafdís Sigurðardóttir þarf líklega að bæta Íslandsmetið í langstökki til að komast í úrslit á EM í Prag. 5. mars 2015 06:45 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira
Hafdís: Nota þessi þrjú stökk eins vel og ég get Hafdís Sigurðardóttir þarf líklega að bæta Íslandsmetið í langstökki til að komast í úrslit á EM í Prag. 5. mars 2015 06:45