Menning

Fanga stemningu sem fólk upplifir

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég gaf út barnabækur í gamla daga, meðal annars Húsdýrin okkar, sem margar kynslóðir þekkja,“ segir Kristján Ingi.
"Ég gaf út barnabækur í gamla daga, meðal annars Húsdýrin okkar, sem margar kynslóðir þekkja,“ segir Kristján Ingi. Mynd/Úr einkasafni
„Mér finnst hestarnir vera hluti af náttúrunni og ég mynda þá eins og við sjáum þá þegar við ferðumst um landið, við fjölbreyttar aðstæður og í ólíku veðurfari. Ég tek það fram að ég hef lítið vit á hestum en finnst þeir alltaf tignarlegir og hef gaman af að mynda þá,“ segir Kristján Ingi Einarsson ljósmyndari.

Þetta er fimmta myndabókin sem Kristján Ingi gefur út frá árinu 2009. Allar eru þær hugsaðar fyrir erlenda ferðamenn og gefnar út á erlendum tungumálum. Sumar eru að koma út í þriðju prentun, svo sem I Was here og Niceland.

„Þessar bækur hafa einhvern veginn hitt í mark, bæði fyrir það að brotið á þeim er skemmtilegt og ég hef lagt áherslu á að hafa myndirnar sem eðlilegastar og reynt að fanga stemningu sem fólk upplifir þegar það ferðast um landið. Það er kúnst að missa sig ekki í myndvinnslunni eins og mér finnst sumir detta svolítið í á þessum tölvutímum, þá geta litir orðið óeðlilegir,“ segir Kristján Ingi sem kveðst forðast að hafa fólk á myndum. „Ég vil að landslagið og kyrrðin njóti sín,“ útskýrir hann.

„Ég hef lítið vit á hestum en finnst þeir alltaf tignarlegir,“ segir ljósmyndarinn.Mynd/Kristján Ingi
Kristján Ingi kveðst hafa tekið myndir frá því hann var tíu ára og fékk sína fyrstu kassamyndavél.

„Ég gaf út barnabækur í gamla daga, meðal annars Húsdýrin okkar sem margar kynslóðir þekkja. Eins gerði ég margar bækur fyrir Námsgagnastofnun en nú í seinni tíð hefur landslagsljósmyndun átt hug minn allan og ég hef snúið mér að útgáfu á landkynningarbókum sem hafa bara gengið vel, I was here og Niceland hafa verið meðal mest seldu bóka í þeim flokki á Íslandi frá því að þær komu út.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.