Menning

Hlýtur Vigdísar­verð­launin 2026

Atli Ísleifsson skrifar
John Swedenmark hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 fyrir framlag sitt í þágu menningar og tungumála með bókmenntaþýðingum sínum.
John Swedenmark hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 fyrir framlag sitt í þágu menningar og tungumála með bókmenntaþýðingum sínum. HÍ

Sænski þýðandinn, ritstjórinn og rithöfundurinn John Swedenmark hlýtur Vigdísarverðlaunin í ár. Rektor Háskóla Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra munu afhenda verðlaunin við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands 12. nóvember næstkomandi og mun John Swedenmark flytja erindi af því tilefni.

Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að Vigdísarverðlaunin séu árlega veitt einstaklingi sem brotið hafi blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs. 

„Íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar, starfrækt undir merkjum UNESCO, efndu til Vigdísarverðlauna í tilefni af stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur vorið 2020, en þá voru jafnframt liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar. Stuðningur Vigdísar við mikilvægi tungumála og menningar hefur öðrum þræði einkennt ævistarf hennar, en hún er velgjörðarsendiherra tungumála hjá UNESCO (Mennta, menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna).

John Swedenmark hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 fyrir framlag sitt í þágu menningar og tungumála með bókmenntaþýðingum sínum. Hann nam norræn tungumál við háskólann í Uppsölum og hefur í áratugi verið helsti núlifandi þýðandi íslenskra bókmennta á sænsku, jafnframt því sem hann þýðir bókmenntir úr fleiri tungumálum, meðal annars samísku, frönsku og ensku. John er einnig mikilvirkur höfundur ritgerða um bókmenntir og menningargagnrýni. Auk rúmlega 50 útgefinna þýðinga liggja eftir hann ritgerðasöfnin Om Kritikmaskinen och andra texter (2009) og Baklängesöversättning och andra texter (2011). John hefur jafnframt lagt lóð á vogarskálar bókmenntafélaga og tímarita. Árin 2004–2015 var hann menningarritstjóri LO-Tidningen/Arbetet; hann situr í ritstjórn Divan, tímarits um sálgreiningu og menningu; undanfarin 25 ár hefur hann verið sekreterare Gunnar Ekelöf-bókmenntafélagsins, og frá árinu 2015 hefur John setið í ritstjórn tímaritsins Karavan sem gefur út skáldskap frá öllum heimshornum. John Swedenmark hefur verið nefndur sendiherra íslenskra bókmennta í Svíþjóð og sæmdur viðurkenningum á borð við Fálkaorðu Forseta Íslands (2018), hlotið þýðingaverðlaun Sænsku akademíunnar (2019), heiðursverðlaunin Orðstír (2020), verðlaun Letterstedtska félagsins (2021), og þýðingaverðlaun akademíunnar Samfundet De Nio (2026).

Fyrri handhafar Vigdísarverðlaunanna eru Ryan Eyford (2025), sagnfræðingur og dósent við University of Winnipeg, Asifa Majid (2024), sálfræðingur, málfræðingur og prófessor í hugrænum vísindum við Oxford-háskóla, Anne Carson (2023), skáld og sérfræðingur í klassískum fræðum og nýbakaður handhafi bókmenntaverðlauna Nóbels, Juergen Boos (2022), forstjóri Bókastefnunnar í Frankfurt, grænlenska ljóðskáldið og málvísindakonan Katti Frederiksen (2021), og færeyski málvísindamaðurinn, kennarinn og útgefandinn Jonhard Mikkelsen (2020). Í stjórn Vigdísarverðlauna 2026 sitja Birna Bjarnadóttir, rannsóknalektor við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands (formaður stjórnar), tilnefnd af rektor Háskóla Íslands, Sofiya Zahova, forstöðumaður Vigdísarstofnunar, og Páll Valsson, rithöfundur og útgáfustjóri bókaforlagsins Bjarts, tilnefndur af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Magnús Diðrik Baldursson, skrifstofustjóri rektorsskrifstofu Háskóla Íslands, starfar með nefndinni,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.