Nýársspá Siggu Kling – Sporðdreki: Sjálfsöryggið mun geisla af þér! Stefán Árni Pálsson skrifar 4. janúar 2016 09:00
Elsku margliti sporðdrekinn minn. Ekki líta svo á að lífið sé barátta því þá vilja svo margir berjast við þig. En það vill enginn berjast við friðelskandi sporðdreka og þannig er best fyrir þig að vera, þá ganga allir í hópinn þinn.Þú hefur segulmagnaða orku og ættir að hafa fundið fyrir henni síðustu þrjá mánuði, þú magnar bara hreinlega allt upp svo hugsaðu bara að lífið leysi það sem þarf að leysa og það gefi þér þær gjafir sem þú vilt og þarft. Hin sterka pláneta Júpíter lýsir upp þetta nýja ár og gefur þér magnaðan kraft. Slepptu gamalli sorg úr huga þér, leyfðu leyndarmálunum að fljóta upp á yfirborðið og láttu þau svo bara fara. Það mun gefa þér frelsi til að fljúga! Þú verður harðákveðinn í að láta í þér heyrast og mörgum í kringum þig finnst að þú hafir eitthvað breyst. Ástarenglarnir senda þau skilaboð að vera ekki að vesenast í flóknum samböndum sem byggja á ótta, afbrýðisemi eða einungis kynlífi. Það dugar þér ekki. Í ástinni er það heiðarleiki, einlægni og traust sem einkennir orkuna sem þú þarft á að halda til þess að nýja árið verði dásamlegt. Þú ert búinn að fá skilaboð inn í líf þitt um hvernig þú getir gert það ennþá betra og ef þú ert ekki viss um hvaða skilaboð ég er að tala um þá skalt þú taka eftir því sem verður sagt við þig á næstunni. Það gæti verið að þau væru ekki komin til þín ennþá. Þú munt skilja allt í kringum þig eitthvað svo miklu betur og sjálfsöryggið mun geisla af þér elskan mín. Þetta er happaárið þitt! Gleðilegt ár, elsku sporðdrekinn minn! Þín Sigga KlingFrægir sporðdrekar: Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Fleiri fréttir „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Sjá meira