Ginobili þurfti að fara í aðgerð á eista Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2016 23:00 Manu Ginobili. Vísir/Getty
San Antonio Spurs verður án Argentínumannsins Manu Ginobili næsta rúma mánuðinn eftir að hann meiddist á eista í leik á móti New Orleans Pelicans í vikunni. Manu Ginobili gekkst undir aðgerð í gær og það gæti vel farið svo að hann verður lengur frá en í þennan eina mánuð. Ginobili meiddist á þessum viðkvæma stað þegar hann hnéð á Ryan Anderson í klofið þegar 2:26 voru eftir að leik liðanna á miðvikudagskvöldið. Anderson fékk dæmda á sig sóknarvillu. Ginobili engdist um á gólfinu í dágóðan tíma og Tim Duncan hjálpaði honum síðan inn í búningsklefa. Hinn 38 ára gamli Manu Ginobili var að íhuga það að setja skóna upp á hillu eftir síðasta tímabil en ákvað að taka einn slag til viðbótar. Hann hefur komið með 10,0 stig, 3,3 stoðsendingar, 3,0 fráköst og 1,1 stolinn bolta inn af bekknum á 19,7 mínútum í leik. Tim Duncan hefur ekki spilað síðustu leiki liðsins og nú missir San Antonio Spurs liðið Manu Ginobili í langan tíma. San Antonio Spurs hefur unnið 41 af 49 leikjum tímabilsins til þessa og mun sakna þess að fá hinn útsjónarsaman og leikreynda Manu Ginobili ekki inn af bekknum í næstu leikjum sínum.
NBA Mest lesið Fyrirliði Bandaríkjanna ver gjammandi stuðningsmennina Golf „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Enski boltinn Sagði áhorfanda að naglhalda kjafti Golf Í beinni: Vestri - ÍBV | Vestramenn í vandræðum Íslenski boltinn Nik hættir með Breiðablik og tekur við Kristianstad Íslenski boltinn Slot varpaði sökinni á Frimpong Enski boltinn Aðeins sá sjötti til að skora tvö sjálfmörk í einum leik Fótbolti Sveinn Aron skoraði beint úr aukaspyrnu Fótbolti Evrópa með afgerandi forystu fyrir lokadaginn Golf Sjáðu allt það helsta úr enska boltanum í gær Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 83-86 | Njarðvík meistari meistaranna eftir kaflaskiptan leik Tindastóli og Njarðvík spáð toppnum í vetur Svona var kynningarfundurinn fyrir Bónus-deildirnar í vetur Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Sjá meira