Stærstu mistök heilbrigðismála í uppsiglingu? Guðmundur Karl Snæbjörnsson skrifar 5. febrúar 2016 07:00 Engin vísindaleg rök eru fyrir því að setja rafrettur í fjötra laga og reglugerða eins og til stendur að gera ef Ísland fer að tilskipun Evrópusambandsins (EU/ESB, TPD 2014/40/EU)(1). Þessari tilskipun er ætlað að vera komin í lög hjá aðildarríkjum EU fyrir 20. maí 2016 og síðar hjá EFTA (EES) ríkjunum. Röng hugmyndafræði „tóbaksvarna“ er þar látin ráða þvert á staðreyndir byggðar á vísindalegum rannsóknum. Margir helstu vísinda- og fræðimenn á þessu sviði hafa því sent WHO/FCTC kröftug mótmæli við tilskipuninni og ásakað WHO um að hafa rangfært og snúið út úr rannsóknum þeirra og að WHO hafi ekki haft almannaheill að leiðarljósi (2,5). Þessir fræðimenn halda því fram að rafrettan sé eitt það mikilvægasta sem komið hefur fram í heilbrigðismálum á seinni tímum. Gæti orðið til þess að hægt væri að bjarga miljónum mannslífa í Evrópu á þessari öld, en um 700.000 manns deyja árlega í Evrópu af völdum reykinga (WHO). Hér á landi um 400 manns og sem veldur aukalega um 20 milljarða árlegum kostnaði (17). Ítrekuðu þeir við WHO að farið væri að öllu með gát varðandi rafrettur í hinni nýju tilskipun og forðast bæri að líta á rafrettur sem tóbaksvöru sem þyrfti að varast með sama hætti og sígarettur og annað reyktóbak (3,4). Á meðal þessara fræðimanna eru nokkrir sérfræðingar sem hafa verið ráðgjafar NICE (National Institute for Health and Care Excellence) varðandi ráðleggingar tóbaksvarna. Þeir birtu síðan bréf sitt eftir að lekið hafði verið til þeirra að WHO liti svo á að mikil ógn stafaði af rafrettunni (3). Eftir að ný tilskipun WHO/FCTC var birt hefur aldrei komið fram eins mikil gagnrýni á nokkra tilskipun. Eru greinarnar orðnar yfir 90.000 talsins. Einn fyrrverandi framkvæmdastjóra WHO, Dr. Derek Yach (cabinet director, stýrði myndun FCTC-nefndarinnar, sem ákveður stefnu WHO í tóbaksvörnum), hefur gagnrýnt harðlega sína fyrrverandi samstarfsfélaga. Tilskipun sem skaðar okkur og deyðir ef vitnað er í ummæli hans og hann segir rafrettuna gefa fólki betri heilsu og líf sitt tilbaka (8,16). Fyrrverandi landlæknir Bandaríkjanna, Dr. Richard Carmona (9), hefur talað í sama tón svo og fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóða læknasamtakanna (WMA), Dr. Delon Human (10), sem sagði nýlega að með rafrettunni væri komið stórkostlegt tækifæri fyrir okkur til að ljúka baráttunni við sígarettuna og losa okkur við skaðsemi hennar og bjarga þannig ómældum fjölda mannslífa. Dr. Robert West, einn þessara fræðimanna, sagði nýlega að ef okkur mistækist að nýta tækifærið sem fælist í notkun og aðgengi rafrettunnar þá mætti líkja því við að við værum að dæma fólk til dauða, sem annars hefði lifað tóbakslaust. Um þetta snýst málið, segir hann (13). Samkvæmt rannsóknum næst 60% betri árangur meðal fólks við að hætta að reykja með hjálp rafrettunnar umfram það sem næst með nikótínlyfjunum, plástrum, tyggjói, töflum og af eigin viljastyrk (11,13,18). Það vekur athygli að rafrettan, sem þó er ekki einu sinni tóbaksvara, inniheldur ekkert tóbak, hefur þrátt fyrir það verið flokkuð undir tóbaksvörur samkvæmt tilskipun EU (TPD). Ekki heldur er vökvinn í rafrettunni lyf, ekki frekar en að tóbakið væri flokkað sem lyf. Þess vegna ætti vökvi rafrettunnar ekki að fylgja samhliða skilgreiningum MPD 2001 (Medicinal Product Directive) sem varðar lyf eingöngu. Samt á að takmarka styrk vökvans og setja ýmis þröngvandi skilyrði, einnig varðandi innflutningsleyfin og markaðssetninguna líkt og um lyf væri að ræða. Einhver ávinningur af því nema fyrir lyfjafyrirtækin? En svona til umhugsunar í þessu samhengi, hefur nokkrum manni verið sýnd innihaldslýsing sígaretta? Þessarar neytendavöru sem hefur verið á markaðnum rúma hálfa öld og drepur helming af langtíma neytendum sínum vegna efna í tóbaksreyknum. Er ekki nægileg alvara fylgjandi því að helmingur neytenda deyr af völdum tóbaksreyksins? Af hverju er þá ekki búið fyrir löngu að banna reyktóbakið, sér í lagi sígaretturnar? (15) Því hefur verið spáð að rafretturnar fari fram úr sígarettunum í sölu á allra næstu árum (Wells Fargo), gæti gert sígarettuna útlæga úr neyslusamfélagi okkar með stuðningi heilbrigðisyfirvalda (15).Stormur í sápukúlu? Reykur sígarettu drepur, skaðleg umhverfinu - Gufa rafrettu skaðlaus notandanum og fólki í umhverfinu. Skaðsemi rafgufu álíka varasöm og loft í sápukúlum. Nikótíni fylgir fíkn, en hættulaus og á pari með kaffidrykkju í skaðsemi fyrir heilsu fólks. Hvað ber þá að varast? Reyktóbakið og sígarettureykinn.Heilsufarslegur ávinningur reykingafólks með því að skipta yfir í rafrettur er gríðarlegur. Rafrettur eru metnar 95% skaðlausari en sígaretturnar (6,7). Þessi 5% eru auk þess aðeins fyrirvari, ekki staðfesting á skaðlegum áhrifum. Margir fræðimenn meta hugsanlegan skaða þeirra jafnvel miklu minni, ef þá nokkurn. Er því virkilega þörf á að mismuna rafrettum gagnvart sígarettum á markaðinum? Tóbaksreykur drepur, rafrettur bjarga. Rafrettur sem við vitum að eru nánast hættulausar, en eiga samt að lúta fjötrum og takmörkunum í framboði til almennings. Þetta er brot á jafnræðisreglunni og væntanlega markmiðum viðskiptasamninga EU ásamt lögmálum siðfræðinnar. Í ofanálag á að leyfa, skv. hinni nýju tilskipun, að sígaretturnar verði áfram í nánast í óheftri sölu sem neytendavara. Aðeins með eins konar sýnileikabanni, takmarkandi nafnamerkingum og nýjum myndum á pökkunum til að reyna að draga úr notkun þeirra! Gætum allt eins sleikt frímerki eða álíka á pakkana og kassadaman svo bara ullað á viðskiptavinina til að hræða fólk frá kaupunum. Það er harla gagnslítið í samanburðinum, þar sem jafnræðisregla framboðs og samkeppni á markaði er ekki til staðar, milli þess sem veldur dauða og þess sem gæti bjargað (14). Hver hefur hag af slíkri mismunun? Auðvitað framleiðendur sígarettanna, ekki almenningur. Að innleiða hina nýju tilskipun EU er röng ákvörðun stjórnvalda og ekki réttlætanleg með nokkrum vísindalegum rökum eða lögmálum siðfræðinnar (12). Við verðum að treysta á að Alþingi og þingmenn okkar hafi almannaheill og heilsu almennings hér í algjörum forgangi og hafni tilskipuninni alfarið, þegar og ef frumvarp um slíkt verður lagt fram af heilbrigðisráðherra. Annað væri alvarleg mistök og almannaheill með því fyrir borð borin. Veljum bætta heilsu, dauðinn getur beðið, með leyfi Alþingis.Heimildir: Tilskipun EU, TPD 2014/40/EUGrein í Telegraph, E-cigarettes could save millions of lives, experts tell WHOMótmæli 15 vísinda- og fræðimannaMótmæli 53 vísinda- og fræðimannaMótmæli Dr Lynne E. DawkinsRafrettur – 95% skaðlausari en reykingarSkýrsla breskra heilbrigðisyfirvalda, PHE, Public Health England.E-cigarettes saves lives, fyrrv framkvæmdastjór WHO, Alþjóða Heilbrigðisstofnunarinnar, Dr Derek Yach.Grein í New York Post, frá fyrrverandi landlækni Bandaríkjanna, Dr. Richard Carmona. A Billion Lives (trailer) Heimildarmynd, væntanleg til sýninga í mars-apríl 2016; verið að vinna að sýningum hér á landi, fyrrverandi formaður Alþjóða læknasamtakanna, viðtöl við Clive Bates, Dr Derek Yach, Dr Delon Human o.fl. Trends in electronic cigarette use in England, The E-Cigarette Summit, fyrirlestur, Professor Robert West: The Counterfactual, frábært blogg varðandi tóbaksvarnir og rafrettur, frá Clive Bates MsC, fyrrverandi formanni ASH UK. BBC News - Electronic Cigarettes are healthy! Prof Dr Robert West, Prof Dr Peter Hajek,UK health expert supports e-cigs, Prof John Britton, Royal College of Physicians, byrjar 0:13-0:34, Lokataflið - Sígarettan er dauð, lengi lifi þú og égSmoking kills, nicotine doesn't, grein í Spectator Health, Kostnaður vegna reykinga á Íslandi árið 2000, Skýrsla til Tóbaksvarnanefndar, Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.NHS could start prescribing e-cigarettes as study finds them 60% more effective than gum or patches,Aukaefni: E-cig Summit 2015. Prof Peter Hejek, ræðir nikótín, fíkn etc og hvernig hugmyndafræðin “ tóbaksvarna" getur verið skaðleg heilsu almennings gagnstætt ásetningnum.E-cig Summit 2015. Clive Bates MsC, ræðir kosti og galla tilskipunar TPD 2014/40/EU, afleyðingar tilskipunarinnar. Hagnast bara sígarettuframleiðendum og lyfjafyrirtækjum. BBC viðtal við Prof Gerry Stimpson, greinilega með þetta á hreinu. E-cig Summit 2015. Prof K. Farsalinos, ræðir ýmsar rannsóknir sem eru umdeildar, sumar tóm vitleysa og aðrar bara skandall. Já og minnist líka á snusið hjá Svíunum og frábæran árangur þeirra í lágri tíðni reykingatengdra sjúkdóma. Tekur m.a. hina frægu skandal rannsókn á formaldehyde í rafrettum! E-cig Summit 2015. Panel umræða um m.a. Viðhorfin til nikótíns, slæmt eða gott Smoke Without Fire: The story of the e-cigarette. Of mikil forsjárhyggja drepur! Flott myndband með fjölda viðtala og sjónarmiða. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Rafrettur Mest lesið Kirkjur og kynfræðsla Bjarni Karlsson Skoðun Stóriðjutíminn á Íslandi er að renna sitt skeið Guðmundur Franklin Jónsson Skoðun Lesum meira með börnunum okkar Steinn Jóhannsson Skoðun Kynjajafnrétti á ekki að stöðvast við hurð heilbrigðiskerfisins Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir Skoðun Íbúðalán Landsbankans og fyrstu kaupendur Helgi Teitur Helgason Skoðun Mannfræðingar á atvinnumarkaði: opið bréf til íslenskra atvinnuveitenda Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir Skoðun Að læra íslensku sem annað mál: ný brú milli íslensku og ensku Guðrún Nordal Skoðun Barnvæn borg byggist á traustu leikskólakerfi Stefán Pettersson Skoðun Núll mínútur og þrjátíuogeittþúsund Grétar Birgisson Skoðun Ójöfnuður í fjármögnun nýsköpunarverkefna Elinóra Inga Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Iðjuþjálfun í verki Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Mannfræðingar á atvinnumarkaði: opið bréf til íslenskra atvinnuveitenda Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íbúðalán Landsbankans og fyrstu kaupendur Helgi Teitur Helgason skrifar Skoðun Að læra íslensku sem annað mál: ný brú milli íslensku og ensku Guðrún Nordal skrifar Skoðun Hamona Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ógn og ofbeldi á vinnustöðum – hvað er til ráða Gísli Níls Einarsson skrifar Skoðun Lesum meira með börnunum okkar Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Kynjajafnrétti á ekki að stöðvast við hurð heilbrigðiskerfisins Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar Skoðun Stóriðjutíminn á Íslandi er að renna sitt skeið Guðmundur Franklin Jónsson skrifar Skoðun Núll mínútur og þrjátíuogeittþúsund Grétar Birgisson skrifar Skoðun Barnvæn borg byggist á traustu leikskólakerfi Stefán Pettersson skrifar Skoðun Kirkjur og kynfræðsla Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Ójöfnuður í fjármögnun nýsköpunarverkefna Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun „Dánaraðstoð er viðurkenning á sjálfræði sjúklings og mannlegri reisn” Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þjóð án máls – hver þegir, hver fær að tala? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hvað vilja sumarbústaðaeigendur í Grímsnes- og Grafningshreppi? Bergdís Linda Kjartansdóttir skrifar Skoðun Lýðræði og samfélagsmiðlar Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun „Þú þarft ekki að skilja, bara virða“ Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Þetta er ekki tölfræði, heldu líf fólks Sandra B. Franks skrifar Skoðun Stjórnmálaklækir og hræsni Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Samfélag sem stendur saman Benóný Valur Jakobsson skrifar Skoðun Er biðin á enda? Halla Thoroddsen skrifar Skoðun Lífsstílsvísindi og breytingaskeiðið Harpa Lind Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Hærri skattar á ferðamenn draga úr tekjum ríkissjóðs Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Ég þarf ekki að læra íslensku til að búa hérna Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Ósýnilegu bjargráð lögreglumannsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Allt á einum stað – framtíð stafrænnar þjónustu ríkis og sveitarfélaga Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Óttast Þorgerður úrskurð EFTA-dómstólsins? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Jafnréttisþjóðin sem gleymdi dansinum Brogan Davison,Pétur Ármannsson skrifar Skoðun Hver er að væla? Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Sjá meira
Kynjajafnrétti á ekki að stöðvast við hurð heilbrigðiskerfisins Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir Skoðun
Mannfræðingar á atvinnumarkaði: opið bréf til íslenskra atvinnuveitenda Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Mannfræðingar á atvinnumarkaði: opið bréf til íslenskra atvinnuveitenda Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Kynjajafnrétti á ekki að stöðvast við hurð heilbrigðiskerfisins Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar
Skoðun „Dánaraðstoð er viðurkenning á sjálfræði sjúklings og mannlegri reisn” Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Hvað vilja sumarbústaðaeigendur í Grímsnes- og Grafningshreppi? Bergdís Linda Kjartansdóttir skrifar
Skoðun Allt á einum stað – framtíð stafrænnar þjónustu ríkis og sveitarfélaga Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Kynjajafnrétti á ekki að stöðvast við hurð heilbrigðiskerfisins Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir Skoðun
Mannfræðingar á atvinnumarkaði: opið bréf til íslenskra atvinnuveitenda Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir Skoðun