Skoðun

Burt með bölvað ofstækið

Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar

Pakistanski trúarleiðtoginn Muhammad Taqi Usmani, flutti á dögunum fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg.

Sá maður hefur varið dauðarefsingu gagnvart því fólki sem yfirgefur íslamska trú, það er þeirra sem voga sér að breyta sinni trúarafstöðu, nokkuð sem við teljum algerlega vera persónulegt mál. Sem sagt þá sem skipta um trúarskoðun, má drepa. Einnig talar hann fyrir refsingum svo sem aflimunum og grýtingum sem fullgildum refsingum, samkvæmt íslömskum rétti. Hann hefur einnig talað fyrir auknum refsingum fyrir kynferðislegu samneyti samkynhneigðra. Eins fagnaði hann valdatöku talíbana í Afganistan á sínum tíma. Við þekkjum afstöðu talíbana til kvenna. Þetta er sjúk afstaða.

Talsmönnum þessara ofstækis-skoðanna á ekki að hleypa inn land okkar!

Þetta er í hrópandi andstöðu við öll okkar rótgrónu, vestrænu og íslensku gildi. Ég trúi að við Íslendingar reynum að aðhyllast víðsýni, mannréttindi og umburðarlyndi. En þetta er í hrópandi andstöðu við öll okkar gildi. Ofstækisfullar sértrúarskoðanir eru einfaldlega eitur. Nokkuð sem okkur ber að forðast og fjarlægja úr okkar umhverfi. Sama hvort þær koma frá íslam, kristni eða gyðingdómi. Þær er nefnilega að finna í öllum helstu trúarbrögðunum.

Þær eru að finna í gyðingdómi svo sem í dag hjá mönnum eins og Bezalel Smotrich og Itamar Ben Gvir í fráfarandi ríkisstjórn Ísrael en beinast í allt aðra átt. Megi þeir aldrei koma til okkar lands með sínar sjúku hugmyndir. Aðra mætti nefna hér.

Í kristnum menningarheimi nútímans er að finna einhverja alvarlegustu glæpina. Í Rússlandi notar Pútín rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna og Kírill patríarka æðsta mann kirkjunnar til að blessa yfir og kyssa, öll þau viðbjóðslegu vopn, tæki og tól sem hann dælir yfir saklausa borgara Úkraínu til að drepa sem flesta og eyðileggja sem mest.

Í Bandaríkjunum undir núverandi forseta er kristnum gildum gersamlega snúið á hvolf þar sem þau eru notuð til að réttlæta sjálfhverfar og forheimskulegar aðgerðir einstaklings sem kosta ómælda þjáningu og ótal mannslíf. Öfgafull hægri bókstafstrú einkum í suðurfylkjum Bandaríkjana er kominn óralangt frá upphaflegum boðskap Jesú Krists.

Þrjár stóru eingyðistrúarhefðirnar gyðingdómur, kristni og islam eiga mun meira sameiginlegt en það sem greinir á milli. Í kjarnaboðskap þeirra allra er að finna samhygð, náungakærleika og umburðarlyndi. En ofstækið og blind bókstafstrú er sem eitur, mikill skaðvaldur innan allra trúarhefðanna og hafa komið óorði á allar trúarhefðirnar og valdið þjáningu og tjóni um allan heim.

Jú, við eigum að hafa þroska og þor til að útiloka skaðræðis ofstækismenn eins og Muhammad Taqi Usmani. Eins eigum við að kanna þann fjárhagslega bakgrunn þeirra sem bjóða manni sem þessum til landsins. Hverjir hafa fjármagnað það trúfélag eða þann grunn sem stendur að baki þessum fáránleika? Berjumst gegn þeim öflum sem þennan sjúklega málstað styðja. Burt með bölvað ofstækið.

Höfundur er prestur.




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×