
Rio Tinto vill lögbann á að yfirmönnum sé meinað að lesta áli

Telur ISAL að tuttugu og fimm yfirmönnum, auk forstjóra, framkvæmdastjóra og stjórnar, sé heimilt að lögum að skipa álinu út.
Verkfallsverðir stöðvuðu útskipun um tuttugu yfirmanna í álverinu á áli í Straumsvík á miðvikudagsmorgun í síðustu viku en þá höfðu Rannveig Rist, forstjóri fyrirtækisins og aðrir stjórnendur, lestað um fimm hundruð tonnum af áli um borð í flutningaskip sem hélt svo áleiðis til Rotterdam með aðeins einn tíunda af þeim farmi sem fyrirhugað var að það tæki hér.
Verkfall hafnarstarfsmanna álversins hófst á miðvikudaginn í síðustu viku. Er verkfallinu ætlað að koma í veg fyrir að ál frá Straumsvík verði flutt út til viðskiptavina fyrirtækisins.
Megi yfirmenn ekki lesta ál til útflutnings hafi það grafalvarlegar afleiðingar
Í tilkynningu frá ISAL segir að fyrirtækið leiti leiða til að standa við skuldbindingar sínar við viðskiptavini enda byggi fyrirtækið tilveri sína á því.
Telur fyrirtækið að komi verkfallið í veg fyrir að yfirmenn geti lestað ál um borð í skip til útflutnings hafi það grafalvarlegar afleiðingar fyrir ISAL og svipti fyrirtækið öllum tekjum um ófyrirséðan tíma, enda er verkfallið ótímabundið. Álið frá ISAL er flutt út vikulega og er söluverðmæti hvers farms um það bil einn milljarður króna.
Samninganefndir Rio Tinto Alcan og starfsmanna álversins í Straumsvík komu saman til fundar í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag þar sem þess er freistað að leita lausna í deilunni.
Tengdar fréttir

Um hvað snýst kjaradeila verkalýðsfélaga starfsmanna í ISAL?
Í fyrsta lagi snýst deilan um að samið verði á sömu nótum og samið hefur verið um á íslenskum vinnumarkaði. Í rammasamkomulagi verkalýðsfélaga og atvinnurekenda var samið um 32% hækkun frá 1. maí 2013 til 31. des 2018, með þeirri viðbót sem verið er að greiða atkvæði um þessa dagana.

Rio Tinto vill láta reyna á aðgerðir yfirmanna fyrir dómstólum
„Það væri sérkennilegt að láta svona ágreining um hvar rétturinn liggur, liggja svona óleystan,“ segir upplýsingafulltrúi álversins.

Óvænt boðað til sáttafundar í álversdeilunni
Ríkissáttasemjari hefur kallað deiluaðila í álverinu í Straumsvík til sáttafundar á mánudag. Næsta útskipun ætti að verða á þriðjudag.

Lausna leitað í álversdeilunni hjá sáttasemjara í dag
Næsta skip væntanlegt til Straumsvíkur í dag.

Heldur til Rotterdam með einn tíunda af fyrirhuguðum farmi
Flutningaskip sem átti að lesta ál í Straumsvík og er þar í höfninni verður gert sjóklárt með morgninum.

Verkfall hófst á miðnætti
Félagsdómur úrskurðaði í gærkvöldi að útflutningsbann starfsmanna í álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík væri löglegt og hófst það því á miðnætti. Mun því ekkert ál verða flutt út frá Straumsvíkurhöfn á næstunni. Dómurinn kom saman í kjölfar þess að Samtök atvinnulífsins kærðu bannið fyrir hönd álversins.