Bíó og sjónvarp

Latibær tilnefndur til Emmy verðlauna: „Gríðarleg viðurkenning“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnús er í Cannes.
Magnús er í Cannes. vísir
Í kvöld kemur í ljós hvort að Latibær hljóti hin eftirsóttu Emmy verðlaun (International Emmy of Television Arts and Sciences) sem besta barnasjónvarpsserían.

Latibær var tilnefndur ásamt fjórum öðrum, fyrir fjórðu seríuna af Latabæ, sem var framleidd á Íslandi og er nú í sýningu í um hundrað löndum.

Magnús Scheving er staddur i Cannes fyrir hönd Latabæjar.

„Verðlaunin eru ein stærsta viðurkenning sem sjónvarpsefni getur fengið. Tilnefning er því gríðarleg viðurkenning fyrir allt það kvikmyndagerðafólk sem kom að gerð þáttanna,” segir Magnús.

Latibær hefur áður hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi efni á alþjóðavettvangi m.a. Bafta og Emil verðlaun en þetta er í annað sinn sem Latibær er tilnefndur til Emmy verðlaunanna. Í fyrra skiptið var það til bandarísku Emmy en í dag er hann tilnefndur til alþjóðlegu Emmy verðlaunanna.

Í flokknum sem Latibær er tilnefndur í eru þættirnir Bing, O Zoo da Zu og Shimajiro WOW! einnig tilnefndir. Hér má sjá stiklur úr þeim öllum.

NOMINEE – KIDS: PRESCHOOLLazyTown Cartoonito / Turner Broadcasting Systems EuropeIcelandWatch the trailer here:...

Posted by International Emmy Awards on Wednesday, 30 March 2016





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.