Tvö rauð spjöld á loft þegar Inter tapaði á heimavelli | Roma rúllaði yfir Lazio Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. apríl 2016 21:03 Icardi var á skotskónum í kvöld en það dugði ekki til. vísir/getty
Draumur Inter um að ná Meistaradeildarsæti fjarlægist eftir 1-2 tap fyrir Torino á heimavelli í kvöld. Inter er í 5. sæti ítölsku deildarinnar með 55 stig, átta stigum frá 3. sætinu sem gefur þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. Argentínumaðurinn Mauro Icardi kom Inter í 1-0 með marki úr vítaspyrnu á 17. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Cristian Molinaro jafnaði metin á 55. mínútu og tveimur mínútum síðar fékk Joao Miranda sitt annað gula spjald og þar með rautt. Annað rautt spjald fór á loft á 73. mínútu þegar Yuto Nagatomo braut á Andrea Belotti innan vítateigs. Belotti fór sjálfur á punktinn og skoraði framhjá vítabananum Samir Handanovic. Níu leikmönnum Inter tókst ekki að jafna metin og Torino fagnaði því góðum sigri. Það gekk engu betur hjá nágrönnunum í AC Milan sem töpuðu 2-1 fyrir Atalanta. Luiz Adriano kom Milan yfir með marki úr vítaspyrnu á 5. mínútu en Mauricio Pinalla jafnaði metin mínútu fyrir hálfleik. Það var svo Alejandro Gómez sem skoraði sigurmark Atalanta á 62. mínútu. Roma rúllaði yfir Lazio, 1-4, í Rómarslagnum. Stephan El Shaarawy, Edin Dzeko, Alessandro Florenzi og Diego Perotti skoruðu mörk Roma sem er í 3. sæti deildarinnar með 63 stig.Úrslit dagsins: Inter 1-2 Torino Atalanta 2-1 Milan Lazio 1-4 Roma Udinese 3-1 Napoli Genoa 4-0 Frosinone Chievo 3-1 Palermo Fiorentina 1-1 Sampdoria
Ítalski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Sjá meira