Emil settur á bekkinn og Udinese vann sinn fyrsta sigur síðan í febrúar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2016 12:36 Emil Hallfreðsson og félagar fagna með Bruno Fernandes Borges eftir seinna markið hans. Vísir/Getty
Udinese, lið Emil Hallfreðssonar, hjálpaði bæði sér og toppliði Juventus í dag þegar liðið vann óvæntan 3-1 sigur á Napoli. Udinese þurfti nauðsynlega á stigum að halda ef liðið ætlaði að dragast fyrir alvöru niður í fallbaráttuna. Bruno Fernandes skorðaði tvö mörk fyrir Udinese og Cyril Théréau gerði það þriðja. Gonzalo Higuaín skoraði mark Napoli en var síðan rekinn af velli með tvö gul spjöld í seinni hálfleiknum. Napoli spilaði manni færra síðustu fjórtán mínútur leiksins en þá var Udinese þegar komið í 3-1. Juventus náði sex stiga forskoti á Napoli með sigri á Empoli í gær og Udinese-liðið sá til þess að það forskot helst fram í næstu umferð. Emil Hallfreðsson var settur út úr liðinu og sat á varamannabekknum allan tímann. Hann hefur ekki enn spilað sigurleik með Udinese síðan að hann kom til liðsins í janúar. Udinese hefur aðeins unnið tvo leiki síðan og í hinum leiknum tók Emil út leikbann. Ganamaðurinn Emmanuel Badu kom inn á miðjuna í stöðuna hans Emils en hann er 25 ára og hefur spilað 66 landsleiki fyrir Gana. Sigurinn í dag hjá Udinese var sá fyrsti síðan liðið vann Hellas Verona 28. febrúar en síðan hafði liðið aðeins náð í eitt stig í þremur leikjum. Bruno Fernandes kom Udinese í 1-0 á 14. mínútu og í 2-1 á 45. mínútum en Gonzalo Higuaín minnkaði muninn á 24. mínútu. Cyril Théréau skoraði þriðja markið á 57. mínútu.
Ítalski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Sjá meira