Carvajal meiddur og Bellerín bíður spenntur Tómas Þór Þóraðrson skrifar 30. maí 2016 13:30 Dani Carvajal gengur meiddur af velli í Mílanó. vísir/getty
Dani Carvajal, hægri bakvörður Real Madrid og spænska landsliðsins, missir líklega af Evrópumótinu í fótbolta vegna meiðsla. Carvajal fór af velli meiddur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardaginn þegar Real Madrid vann Atlético Madrid í vítaspyrnukeppni. Hann gekkst undir læknisskoðun í Madríd í dag þar sem kom í ljós að hann er meiddur á mjöðm en það tekur leikmenn vanalega um mánuð að jafna sig af meiðslum af þeirri tegund sem Carvajal varð fyrir. Carvajal er annar leikmaður Real Madrid sem verður fyrir slæmum meiðslum á versta tíma en franski miðvörðurinn Raphaël Varane missti af úrslitaleiknum og missir einnig af Evrópumótinu vegna meiðsla. Evrópumótið hefst eftir tólf daga þannig afar ólíklegt þykir að bakvörðurinn fari með spænska landsliðinu í titilvörnina til Frakklands þar sem það er í riðli með Tékklandi, Tyrklandi og Króatíu. Vicente del Bosque, landsliðsþjálfari Spánar, þarf að tilkynna spænska hópinn í síðasta lagi á morgun en hann sagði eftir 3-1 sigur Spánar gegn Bosníu að Hector Bellerín, bakvörður Arsenal, taki stöðu Carvajal komist Madrídingurinn ekki með. Spánn spilar fyrsta leik sinn á EM 13. júní gegn Tékklandi, degi áður en strákarnir okkar mæta Portúgal í St. Étienne.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira